Knattspyrnumaðurinn Aron Bjarnason verður frá keppni í 2-3 mánuði til viðbótar vegna meiðsla sem hafa verið að hrjá hann síðustu vikur og mánuði. Aron fer í aðgerð í ágústbyrjun til að fá bót meina sinna.
Aron hefur ekkert getað leikið með sænska úrvalsdeildarliðinu Sirius á þessari leiktíð vegna meiðslanna. Hann kom til félagsins fyrir þessa leiktíð frá Újpest í Ungverjalandi, en spilaði með Val á lánssamningi síðasta sumar.
„Ég fer í aðgerð í byrjun ágúst. Ég veit ekki nákvæmlega hvenær ég verð kominn á völlinn, en sennilega 8-12 vikum eftir aðgerð,“ sagði Aron við mbl.is. í dag.
Sirius fékk slæman skell gegn Djurgården á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í dag, 1:5. Liðið er í tólfta sæti deildarinnar með tólf stig eftir ellefu leiki.