Haukar skelltu í lás í Höllinni

Adam Haukur Baumruk reynir skot að marki Fram í Laugardalshöllinni …
Adam Haukur Baumruk reynir skot að marki Fram í Laugardalshöllinni í kvöld. mbl.is/Eggert

Andri Már Rúnarsson átti stórleik fyrir Hauka þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni karla í handknattleik, Powerade-bikarsins, með stórsigri gegn Fram í undanúrslitum keppninnar í Laugardalshöll í dag.

Leiknum lauk með átta marka sigri Hauka, 32:24, en Andri Már skoraði sjö mörk í leiknum.

Bæði lið voru lengi í gang og Marko Coric skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Framara þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknum.

Þá hrukku Hafnfirðingar í gang og þeir skoruðu fimm mörk í röð og komust fjórum mörkum yfir.

Liðin skiptust á að skora eftir þetta, þó Hafnfirðingar hafi verið með frumkvæðið í leiknum og Guðmundur Bragi Ástþórsson kom Haukum þremur mörkum yfir, 12:9, þegar fimm mínútur voru til loka fyrri hálfleiks.

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson minnkaði muninn í eitt mark, 11:12, þegar mínúta var til leiksloka en Haukar skoruðu síðasta mark hálfleiksins og leiddu 13:11 í hálfleik.

Hafnfirðingar byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og Þráinn Orri Jónsson kom þeim fimm mörkum yfir, 18:13, eftir 35 mínútna leik.

Stefán Rafn Sigurmannsson kom Hafnfirðingum svo átta mörkum yfir þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka, 23:15.

Framarar reyndu að klóra í bakkann á lokamínútunum en varnarleikur Hauka var til mikillar fyrirmyndar og Hafnfirðingar fögnuðu öruggum átta marka sigri.

Aron Rafn Eðvarðsson átti stórleik í marki Hauka, varði 12 skot, en Marko Coric var markahæstur hjá Fram með fjögur mörk.

Haukar mæta annaðhvort Aftureldingu eða Stjörnunni í úrslitaleik í Laugardalshöll á laugardaginn kemur en það skýrist síðar í kvöld þegar Afturelding og Stjarnan mætast í hinu undanúrslitaeinvíginu.

Fram 24:32 Haukar opna loka
60. mín. Kristófer Máni Jónasson (Haukar) á skot í slá
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert