Karabatic skrifar undir nýjan samning og spilar fram á fimmtugsaldurinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. febrúar 2023 22:30 Nikola Karabatic er hvergi nærri hættur. Sanjin Strukic/Pixsell/MB Media/Getty Images Franski handboltamaðurinn Nikola Karabatic, sem er af mörgum talinn einn allra besti handboltamaður sögunnar, hefur skrifað undir nýjan samning við franska stórveldið PSG.
Karabatic skrifaði í vikunni undir eins árs framlengingu á samningi sínum við félagið og er því samningsbundinn Parísarliðinu út júní á næsta ári. Franska stórskyttan verður 39 ára í vor og hann verður því orðinn fertugur þegar nýi samningurinn hans rennur út. Mögulega þýðir þetta að Karabatic ætli sér að taka þátt með franska landsliðinu á Ólympíuleikunum sem fara fram í París á næsta ári, en það verður þó að koma í ljós. ✍️🔴🔵Le Paris Saint-Germain Handball est heureux d’annoncer la prolongation du contrat de Nikola Karabatic pour une saison supplémentaire. Le triple champion olympique est désormais lié au Club jusqu’au 30 juin 2024.— PSG Handball (@psghand) February 3, 2023 Eins og áður segir er Karabatic af mörgum talinn vera einn allra besti handboltamaður sögunnar. Hvað svo sem fólki kann að finnast um getu hans inni á handboltavellinum, þá er það algjörlega óumdeilt að titlarnir sem leikmaðurinn hefur unnið á löngum ferli sínum tala sínu máli. Ekki verður farið yfir hvern einn og einasta titil hér - enda væri það ógerningur - en þó verður stiklað á stóru. Með félagsliðum sínum hefur hann unnið Meistaradeild Evrópu í þrígang, heimsmeistaramót félagsliða í tvígang, frönsku deildina fjórtán sinnum og þýsku deildina fjórum sinnum ásamt ótrúlegum fjölda af bikarmeistaratitlum. Þá hefur Karabatic einnig orðið Ólympíumeistari með franska landsliðinu í þrígang, heimsmeistari fjórum sinnum og Evrópumeistri í þrígang. Hann hefur leikið 335 leiki fyrir franska landsliðið frá árinu 2003 og skorað í þeim 1255 mörk, sem gerir hann að fjórtánda markahæsta landsliðsmanni sögunnar.
Franski handboltinn Mest lesið Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“ Fótbolti Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Handbolti Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti „Þegar ég var sjö ára í Birmingham dreymdi mig um svona kvöld“ Fótbolti Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ Handbolti „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Handbolti „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Handbolti Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport „Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“ Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Körfubolti Fleiri fréttir Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Sjá meira