Persónuvernd ekki bær til að taka afstöðu

Fjölmörg erindi berast Persónuvernd á hverju ári vegna tjáningar einstaklinga …
Fjölmörg erindi berast Persónuvernd á hverju ári vegna tjáningar einstaklinga á netinu. mbl.is/Árni Sæberg

Persónuvernd er ekki bær til að taka afstöðu til þess hvort tjáning einstaklinga á netinu sé í samræmi við lög heldur heyrir mat á því undir dómstóla.

Þetta kemur fram í áliti Persónuverndar.

Stofnunin getur aftur á móti í ákveðnum tilvikum fjallað efnislega um birtingu upplýsinga úr gögnum af einhverju tagi eða gagnagrunnum sem hafa að geyma persónuupplýsingar.

Fjölmörg erindi berast Persónuvernd á hverju ári varðandi tjáningu einstaklinga á netinu og þá vinnslu persónuupplýsinga sem tjáningin kann að fela í sér. Þar er um að ræða ábendingar, almennar fyrirspurnir og kvartanir. Þess vegna ákvað stofnunin að gefa út álit á lagaumhverfi tjáningar einstaklinga á netinu, einkum með tilliti til valdheimilda hennar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert