Stærsta áskorun heilbrigðiskerfisins þrátt fyrir færri sjúklinga Eiður Þór Árnason skrifar 12. janúar 2022 17:00 Alma Möller landlæknir. Vísir/Vilhelm Landlæknir segir að heilbrigðiskerfið sé að takast á við sína stærstu áskorun frá því að faraldurinn hófst. Þó færri Covid-sjúklingar séu á sjúkrahúsi nú en þegar mest lét árið 2020 séu aðstæður að mörgu leyti óhliðhollari en áður.
Til að mynda sé erfiðara að eiga við sjúklingafjöldann þegar fleiri starfsmenn eru komnir í einangrun og sóttkví og margir búnir að vera undir langvarandi álagi. 150 starfsmenn Landspítalans eru nú í einangrun og 95 í sóttkví. „Við búumst við miklum erfiðleikum núna og í fyrstu bylgju þá var samfélagið líka allt í hægagangi, það voru færri slys og minna um veikindi og þess vegna færri innlagnir, til dæmis á gjörgæslu. Nú er samfélagið á miklu meiri snúningi og þessar tölur sem við erum að vísa til, eins og fjöldi gjörgæslusjúklinga, kemur ofan á þá sem fyrir eru vegna ýmissa annarra orsaka. Svo það er mjög mikilvægur munur,“ sagði Alma Möller landlæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19. Staðan fari líka heldur versnandi á bráðamóttökunni. 45 á spítalanum með Covid-19 Landspítalinn hefur verið á neyðarstigi frá 28. desember sem er hæsta viðbúnaðarstig spítalans. 45 sjúklingar liggja inni á spítalanum með Covid-19. 39 eru með virkt smit og sex glíma við eftirköst. Sjö eru á gjörgæsludeildum og fjórir í öndunarvélum. Hefur fjöldi Covid-sjúklinga á spítalanum nær tvöfaldast síðan á nýársdag þegar þeir voru 23 talsins. Af þeim 45 sem liggja núna inni á spítalanum eru 29 þar vegna Covid-19, óvissa er um fimm og ellefu liggja inni vegna annarra veikinda. Fjórar innlagnir voru í gær vegna Covid-19. Til samanburðar voru 75 sjúklingar með Covid-19 á Landspítalanum þann 6. nóvember 2020. Þar af voru fjórir á gjörgæslu. Fram kom í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundinum að þegar tekið er tekið er tillit til þess hlutfalls greindra sem lendir á spítala sýni spálíkön að um 70 verði á sjúkrahúsi áður en langt um líður og 20 á gjörgæslu. Um sé að ræða svokallaða meðalspá og fjöldinn geti því reynst verða meiri eða minni. Um 0,5% þeirra sem greinast með Covid-19 hér á landi leggjast inn á spítala. Hlutfallið er lægra ef bara er miðað við ómíkron eða 0,2 til 0,3%. Líka mikið álag á öðrum heilbrigðisstofnunum Alma sagði að álag hafi sömuleiðis aukist á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni að undanförnu. Staðan á sjúkrahúsinu á Akureyri sé viðráðanleg en þó hafi þurft að fresta skurðaðgerðum sem þola bið. Faraldurinn hafi sömuleiðis haft mikil áhrif á heilsugæsluna en um 10% starfsmanna heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru til að mynda í einangrun eða sóttkví. Einnig eru dæmi um að heimilismenn á hjúkrunarheimilum hafi greinst með Covid-19 þar sem starfsfólk er gjarnan frá vegna sóttkvíar eða einangrunar, að sögn Ölmu. Hvatti hún fólk til að skrá sig á lista bakvarðasveita heilbrigðis- og velferðarþjónustu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Tengdar fréttir Barn á fyrsta ári með Covid-19 á Landspítala Eitt barn á fyrsta ári liggur nú inni á Landspítala með Covid-19 og um 60 eru í eftirliti á Barnaspítala vegna sjúkdómsins. Daglega koma um tvö til fimm börn þangað til skoðunar. 12. janúar 2022 11:29 45 sjúklingar á Landspítala með Covid-19 45 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim fjölgað um sex milli daga. 12. janúar 2022 09:43 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Fleiri fréttir Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Sjá meira
Barn á fyrsta ári með Covid-19 á Landspítala Eitt barn á fyrsta ári liggur nú inni á Landspítala með Covid-19 og um 60 eru í eftirliti á Barnaspítala vegna sjúkdómsins. Daglega koma um tvö til fimm börn þangað til skoðunar. 12. janúar 2022 11:29
45 sjúklingar á Landspítala með Covid-19 45 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim fjölgað um sex milli daga. 12. janúar 2022 09:43