Hryssan fær að heita Lán eftir allt saman Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. nóvember 2021 19:22 Lán (fremra hrossið) á beit með félaga sínum. úr einkasafni Hryssa Þebu Bjartar Karlsdóttur, símsmíðameistara og hestaeiganda á Austurlandi, fær að heita Lán eftir allt saman. Hestanafnanefnd samþykkti beiðni Þebu um skráningu á nafninu í dag eftir að hafa hafnað því.
Fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðustu viku. Þeba sagði þar frá því að hún hefði óskað eftir því nú í byrjun mánaðar að fá nafnið Lán samþykkt hjá hestanafnanefnd, til að fá það svo skráð í WorldFeng, upprunaættbók íslenska hestsins. Nafnið beygist eins og kvenmannsnafnið Rán, þ.e. Lán, um Lán, frá Lán til Lánar. En nefndin hafnaði nafninu á grundvelli þess að það væri í raun hvorugkynsorð. Þá fylgdi sögunni að eftir höfnun hestanafnanefndar sendi Þeba mannanafnanefnd beiðni um að fá kvenmannsnafnið Lán samþykkt - sem reyndist auðsótt. Reglur um hestanöfn sem samþykktar voru hjá FEIF, alþjóðasamtökum íslenska hestsins, kveða á um að hestar skuli bera íslensk nöfn - og að nöfn á hryssum skuli kvenkyns en hesta karlkyns. Vísir fjallaði fyrr í dag um hestanöfn sem nefndin hefur hafnað frá stofnun 2016. En nú hefur nefndinni snúist hugur. Í bréfi til Þebu frá hestanafnanefnd sem barst í dag segir að nafnið Lán hafi verið skráð á nafnalista WorldFengs. Hún geti því notað það á hryssuna sína. Þeba er að vonum ánægð með niðurstöðuna. „Fullnaðarsigur! Skyldi þessi ákvörðun eitthvað hafa að gera með fjölmiðlaumfjöllun síðustu viku?“ skrifar Þeba á Facebook-síðu sinni í kvöld, þar sem hún deilir ákvörðun hestanafnanefndar.
Dýr Mannanöfn Hestar Tengdar fréttir Fær sjálf að taka upp nafnið Lán en hryssan ekki Hestaeigandi á Austurlandi furðar sig á því að fá ekki að nefna hryssu sína Lán. Hestanafnanefnd hafnaði nafninu vegna þess að það er hvorugkynsorð - en hægðarleikur var hins vegar að fá það samþykkt hjá mannanafnanefnd. 25. nóvember 2021 19:12 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Fær sjálf að taka upp nafnið Lán en hryssan ekki Hestaeigandi á Austurlandi furðar sig á því að fá ekki að nefna hryssu sína Lán. Hestanafnanefnd hafnaði nafninu vegna þess að það er hvorugkynsorð - en hægðarleikur var hins vegar að fá það samþykkt hjá mannanafnanefnd. 25. nóvember 2021 19:12