Vonast til að fella meirihlutann með fulltrúa Miðflokksins Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 14. maí 2022 22:47 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er mikill Liverpool maður. Hann sagði að allir ættu að kunna að meta spakmæli knattspyrnustjóra liðsins þrátt fyrir að halda ekki endilega með því. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, vitnaði í knattspyrnustjóra Liverpool, Jürgen Klopp, á kosningavöku Miðflokksins þar sem saman voru komnir allir frambjóðendur flokksins á höfuðborgarsvæðinu ásamt stuðningsfólki.
Sigmundur Davíð sagði í samtali við fréttastofu að hann vonaðist til þess að Miðflokkurinn myndi fá einn mann kjörinn í borgarstjórn þrátt fyrir að skoðanakannanir síðustu daga sýna það ekki. „Ég ætla nú ekki að fara að túlka tap áður en það er orðið en ég bendi á að í þessum áhugaverðu könnunum ykkar þá höfum við verið jafnt og þétt vaxandi í Reykjavík og nú miðað við síðustu könnun vantar herslumuninn, aðeins fáein atkvæði til að ná inn okkar manni og ef það gerist þá virðist ljóst að meirihlutinn fellur og þá verða tækifæri til að ná fram verulegum breytingum í borginni.“ Ef Miðflokkurinn mun ekki ná neinum manni inn þegar lokatölur liggja fyrir segist Sigmundur Davíð samt verða stoltur af frambjóðendum flokksins. „Ég varð samt jafn stoltur af oddvitanum okkar og fólkinu sem er búið að vera að berjast því það er að berjast fyrir því sem það raunverulega trúir á.“ Fréttamaður okkar spurði Sigmund Davíð hvort hann þyrfti að skoða stöðu sína sem formaður flokksins ef niðurstaðan verður sú að Miðflokkurinn nái ekki manni inn í höfuðborginni. „Nú ertu komin allt of langt en við erum með ákveðinn flokk hérna sem fékk engan mann kjörinn síðast og er núna spáð miklum sigri, við sjáum hvort það gengur allt saman eftir,“ sagði Sigmundur um sinn gamla flokk, Framsóknarflokkinn. „Þannig að þetta sveiflast allt. Stjórnmálin eru, sérstaklega nú til dags, svolítið mikið eins og straumur í vatni. Þau sveiflast til og frá en við fljótum ekki með straumnum, við syndum á móti straumnum þegar á þarf að halda og við siglum með honum þegar það á við.“ Í ræðu Sigmundar vitnaði hann tvívegis í Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, sem í dag fylgdist með sínum mönnum tryggja sér enska bikarmeistaratitilinn á Wembley í dag. Sigmundur sagði að í lífinu væri heilbrigð skynsemi mikilvægasti hæfileikinn af öllum. Taldi hann Miðflokksmenn hafa þann hæfileika. Þá vitnaði hann í Klopp öðru sinni þegar hann sagði að það væri mest um vert að halda haus á erfiðum dögum. Sagðist hann, með þessum orðum, ekki vera að spá neinu slíku í kosningaúrslitunum en benti á að stjórnmálin væru sveiflukennd rétt eins og vatnið. „Við kunnum að synda á móti straumnum þegar á þarf að halda og við kunnum að sigla með straumnum þegar hann liggur í rétta átt og það er í rauninni ástæðan fyrir því að ég er í þessu,“ sagði Sigmundur Davíð við sitt fólk. Fylgst er með nýjustu tíðindum um allt land í kosningavaktinni á Vísi.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Miðflokkurinn Tengdar fréttir Mikilvægt að fella meirihlutann Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins í borginni, segir flokkinn á mikilli siglingu og vonast til þess að hægt verði að fella meirihlutann. Hann segir mikilvægt að setja væntingar, óskir og þarfir íbúa í fyrsta sæti. 14. maí 2022 11:57 Ný könnun Maskínu: Pawel úti, Líf inni og Framsókn fær fjóra Núverandi meirihluti í Reykjavík fengi tólf fulltrúa af 23 samkvæmt nýrri könnun Maskínu um fylgi flokkanna. Fylgi Framsóknar er á pari við Pírata en báðir flokkar fengju fjóra borgarfulltrúa verði niðurstaðan á morgun í samræmi við könnunina. 13. maí 2022 16:41 Oddviti Miðflokksins á sterum á kosningakvöldi Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, er stoltur af því hvernig hans fólk hefur komið fram í kosningabaráttunni. Hann hefur lent í nokkrum leiðinlegum atvikum í baráttunni og er á sterum í kvöld eftir að hafa misst röddina. 14. maí 2022 22:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Íslandsferðin sem breyttist í martröð Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Fleiri fréttir 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Langt í að þeir nái sér að fullu Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Sjá meira
Mikilvægt að fella meirihlutann Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins í borginni, segir flokkinn á mikilli siglingu og vonast til þess að hægt verði að fella meirihlutann. Hann segir mikilvægt að setja væntingar, óskir og þarfir íbúa í fyrsta sæti. 14. maí 2022 11:57
Ný könnun Maskínu: Pawel úti, Líf inni og Framsókn fær fjóra Núverandi meirihluti í Reykjavík fengi tólf fulltrúa af 23 samkvæmt nýrri könnun Maskínu um fylgi flokkanna. Fylgi Framsóknar er á pari við Pírata en báðir flokkar fengju fjóra borgarfulltrúa verði niðurstaðan á morgun í samræmi við könnunina. 13. maí 2022 16:41
Oddviti Miðflokksins á sterum á kosningakvöldi Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, er stoltur af því hvernig hans fólk hefur komið fram í kosningabaráttunni. Hann hefur lent í nokkrum leiðinlegum atvikum í baráttunni og er á sterum í kvöld eftir að hafa misst röddina. 14. maí 2022 22:03