Hryllingssögur berast af lestarslysinu Ólafur Björn Sverrisson skrifar 3. júní 2023 23:48 Björgunaraðgerðum er lokið en margir leita enn ásvina sinna. AP „Móðir mín var týnd og ég fékk aðeins mynd af líkinu,“ segir sonur eins þeirra sem létust í hryllilegu lestarslysi í Odisha-ríki í Indlandi í gær. Að minnsta kosti 288 manns létust og ríflega þúsund manns slösuðust.
Farþegalest fór út af sporinu og klessti á aðra lest sem kom úr gagnstæðri átt á um 130 kílómetra hraða á klukkustund, um sjöleytið að staðartíma í gær. Í grein Guardian er því lýst hvernig líkum hefur verið raðað upp á hvít lök samhliða brakinu. Í dag og í gær var beðið eftir sjúkrabílum, bílum íbúa og jafnvel traktorum til að ferja líkin á sjúkrahús. Munir farþeganna liggja allt um kring. Um er að ræða mannskæðasta lestarslys á Indlandi í tvo áratugi. Ríflega tvö þúsund farþegar samtals voru staddir í lestunum. Forsætisráðherrann, Narendra Modi, lýsti yfir þjóðarsorg í kjölfar slyssins og heitir því að borga aðstandendum hvers sem lést því sem nemur tæplega tveimur milljónum króna. Í grein Guardian er að auki sagt frá því að aðstandendur hafi leitað í óðagoti að ástvinum sínum sem voru um borð. Þar á meðal hinn fimmtíu og þriggja ára gamli Rabindra Shau sem leitaði sonar síns. „Hjálpið mér að finna son minn. Hjálpið mér að minnsta kosti með lík hans,“ er haft eftir Shau. Annar, Sheikh Zakir Hussain, þrjátíu og fimm ára gamall frá Vestur-Bengal leitaði fregna af bróður sínum, frænda og tveimur nágrönnum sem höfðu allir verið á leið til vinnu með lestinni. „Frá því að ég heyrði fréttirnar af slysinu hringdi ég í bróður minn og frænda, en slökkt var á símanum þeirra,“ sagði hann. „Ég kom snemma morguns og hef farið frá einu sjúkrahúsi til annars, en hef engan þeirra fundið.“ „Ég fór á staðinn og sá hrúgu af líkum liggja þar. Ég sá andlit hundruða látinna, en fann hvorki bróður minn, frænda né nágranna mína.“ Í frétt BBC er einnig rætt við aðstandendur hinna látnu og einn, Mukesh Pandit, sem lifði slysið af. „Það heyrðist þrumuhljóð og lestin valt. Ég var fastur og var bjargað hálftíma síðar af heimamönnum. Allar eigur okkar voru á víð og dreif fyrir utan. Ég fann ekkert af því. Ég fór út og settist á jörðina. Fjórir farþegar sem voru á ferð frá þorpinu mínu hafa komist lífs af en margir eru slasaðir eða enn saknað,“ er haft eftir honum.
Indland Samgönguslys Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira