„Að sjálfsögðu kláraði ég bjórinn“ Snorri Másson skrifar 21. júlí 2021 10:37 Þrátt fyrir að myndefnið sé í grunninn ekki ánægjuefni, vekur þessi ljósmynd mikla lukku á netinu um þessar mundir. Aðsend mynd Fréttaljósmynd ársins er lýsing sem hefur verið höfð um myndina hér að ofan, þar sem Jón Stefánsson, sjálfur meira að segja fyrrverandi ljósmyndari, situr hinn rólegasti og klárar sinn Gull af krana fyrir utan Bláu könnuna á Akureyri á meðan hamfaraástand ríkir í kringum hann.
Fimm gistu fangaklefa eftir meiri háttar átök á staðnum í gær, sem lauk með því að einn mannanna féll í gegnum og braut framrúðu staðarins, með afleiðingum sem blasa við á hægri handlegg mannsins fyrir miðju myndarinnar. Vöðvinn hangir út. Í auga stormsins situr Jón og ljósmyndin af því fer sem eldur um sinu um samfélagsmiðla. Þar er dáðst að yfirvegun Jóns. Í samtali við Vísi segir hann einfaldlega: „Að sjálfsögðu kláraði ég bjórinn.“ Tengdasonur Jóns, sem tók myndina, var nýkominn út með bjórinn þegar slagsmálin færðust út á stétt. „Ég ætlaði ekki að fara að láta þetta trufla mig,“ segir Jón. „Ég var búinn að vera í golfi yfir daginn og var bara mjög slakur. Ég sat bara sem fastast.“ Stóð mönnum bara á sama? Þetta virðast hafa verið almennileg slagsmál. Jón Stefánsson og eiginkona hans Ásthildur Sigurjónsdóttir eru stödd á Akureyri í fríi.Aðsend mynd „Ég veit ekki um aðra en ég hef nú séð ýmislegt, búinn að vera í slökkviliðinu og flugbjörgunarsveitinni. Ég drakk minn bjór, ég ætlaði ekki að fara að skipta mér af þessu.“ Jón lét sér hvergi bregða og stóð raunar ekki upp á neinum tímapunkti. Hann er staddur í fríi með fjölskyldunni fyrir norðan og verður næstu daga. Sá sem blæðir úr á miðri mynd er samkvæmt nýjustu upplýsingum enn staddur á sjúkrahúsi. Fimm gistu í fangaklefa samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Eigandi staðarins segir við Vísi að hópurinn sem hafi að lokum endað í slagsmálum hafi verið rólegur framan af en svo hafi átökin magnast og endað með ósköpum. Íslendingar á Twitter eru heillaðir af stillingu Jóns: jæja þá er pabbi farinn viral! pic.twitter.com/HDrMIRgGPl— Sigurjón Jónsson (@siggisorensen) July 20, 2021 Þetta er svo blygðunarlaust fréttamynd ársins.Hér höfum við eldri mann sem þráði ekkert heitar en að fá einn napran og ráðvandaðan Egils Gull, en nei - einhverjir pattar að norðan þurftu endilega að fleygja sér út um rúðuna í miðjum klíðum og trufla bænagjörðina.Svei’attann! pic.twitter.com/ue3xF7pZZW— Starkaður Pétursson™ (@starkadurpet) July 20, 2021 Ég ætla bara að fá að drekka mína pintu. Takk. pic.twitter.com/gx7XkANwXJ— Jón Kári Eldon (@jonkarieldon) July 20, 2021 pic.twitter.com/6QnSkyA9fg— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) July 21, 2021
Akureyri Eldri borgarar Veitingastaðir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi Sjá meira