Konan sem fór í keisaraskurð vegna Covid-19 óbólusett Snorri Másson skrifar 22. nóvember 2021 12:09 Frá Landspítalanum. Vísir/Einar Covid-smituð kona sem undirgekkst keisaraskurð í mánuðinum hafði ekki fengið bólusetningu samkvæmt upplýsingum fréttastofu.
Sagt var frá því í gær að barn hafi verið tekið með keisaraskurði á Landspítala í mánuðinum vegna Covid-veikinda móðurinnar. Móðirin hafði ekki klárað fulla meðgöngu, heldur þurftu læknar að grípa til þessa ráðs svo að hún gæti lagst á grúfu til að ná betri öndun. Öðruvísi var það ekki hægt enda konan gengin svo langt á leið. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er konan pólsk og hafði ekki fengið bólusetningu við Covid-19. Landlæknir mælir með bólusetningu barnshafandi kvenna eftir að fyrstu 12 vikum meðgöngu er lokið. Í ágúst voru tólf prósent sextán ára og eldri óbólusett á Íslandi. Meirihluti, eða 60,4 prósent, var með erlent ríkisfang. Þegar litið er á íbúa með erlent ríkisfang í heild voru 48 prósent þeirra óbólusett í ágúst. Ísland er í 18. sæti á heimsvísu í bólusetningarhlutfalli með tæplega 80% fullbólusettra. Óbólusettir eru þó í meirihluta af inniliggjandi sjúklingum á Landspítala 13 af 22, tæp 60%. Agnieszka Sokolowska, þjónustufulltrúi hjá Reykjavíkurborg, fædd í Póllandi en búsett hér á landi í fjórtán ár, ræddi þennan vanda við fréttastofu í liðinni viku. Hún kvaðst hafa tekið eftir ótta við bólusetningar meðal samlanda sinna, þó að hún gæti að sjálfsögðu ekki talað fyrir hönd allra. Hreyfing bólusetningarandstæðinga væri mjög sterk í Póllandi. „Og þetta hefur áhrif. Pólverjar hér á Íslandi eru oft að fylgjast með fréttunum frá heimalandi sínu, ekki sérstaklega íslenskum fréttum. Og það er bara áhyggjur um óöryggi bóluefnisins eða aukaverkanir,“ sagði Agnieszka og bætti við að upplifun sumra í fyrstu bylgju hafi verið á þá leið að Íslendingar ættu frekar tilkall til bóluefnis.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sjá meira