Stjórinn grínaðist með að ætla drekka alla bjóra liðsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2021 11:01 Chris Wilder á hliðarlínunni hjá Sheffield United en hann þarf kraftaverk til að bjarga liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Getty/John Sibley Leikmenn Sheffield United fengu ekki að fagna sigrinum á Aston Villa í gærkvöldi því knattspyrnustjórinn Chris Wilder bannaði allt bjórþamb.
Neðsta lið deildarinnar missti Phil Jagielka af velli með rautt spjald á 57. mínútu leiksins en tókst samt að landa 1-0 sigri á Aston Villa. Þetta var aðeins fjórði sigur liðsins á tímabilinu. Sigurmarkið skoraði David McGoldrick á 30. mínútu eftir stoðsendingu frá gamla Eyjamanninum George Baldock. "All the beers the players might have had tonight, I'll do that in place of them!" A win, a clean sheet and excellent spirit from Chris Wilder's 10-men The Sheffield United boss reacts with @TheQuirkmeister... pic.twitter.com/pStyejOJYJ— Football on BT Sport (@btsportfootball) March 3, 2021 „Ég sagði bara við mína leikmenn að ég muni fagna fyrir þá í kvöld. Það er annar stór leikur hjá þeim strax á laugardaginn. Ég mun drekka alla bjórana sem þeir höfðu annars drukkið í kvöld. Ég færi létt með það,“ sagði Chris Wilder léttur eftir leikinn. „Ég gat ekki beðið um meira en þessa frammistöðu. Við höfum oft varist illa á þessu tímabili og höfum verið arkitektarnir að okkar eigin vandræðum. Þið sáuð aftur á móti toppklassa varnarleik í lok leiksins í kvöld,“ sagði Wilder. Hann hrósaði sínu mönnum fyrir hugarfarið á tímabilinu þótt að liðið sé í neðsta sæti og líklegast á leiðinni niður. „Það hefur alltaf búið þessi karakter í liðinu en það hefur verið auðvelt að gagnrýna liðið mitt þegar úrslitin hafa ekki fallið með okkur,“ sagði Wilder. Sheffield United er tólf stigum frá öruggu sæti eftir sigurinn í gærkvöldi.
Enski boltinn Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Íslenski boltinn Enginn Viktor Gísli en Þorsteinn Leó í hópnum Sport Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Handbolti Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Körfubolti Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Íslenski boltinn Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Enski boltinn Leik lokið: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí Körfubolti Fleiri fréttir Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Öruggt hjá Chelsea sem jafnaði City á toppnum Rifust um hver átti að taka vítið Everton áfrýjar stigafrádrætti á nýjan leik Palmer skoraði fernu í stórsigri Chelsea Skytturnar skutu púðurskotum og Man City heldur toppsætinu Tottenham og Man United mætast í bikarúrslitum Allt lagt í sölurnar á Anfield en niðurstaðan grátlegt tap Ten Hag strunsaði út af blaðamannafundi: „Vitum að þetta er ekki nógu gott“ Hollywood-lið Wrexham upp um deild annað árið í röð Man United stal stigi á Vitality-vellinum Afar undarleg sjálfsmörk og markmannsmistök Meistararnir komnir á toppinn Hrikaleg heimsókn norður til Newcastle Ten Hag og nýir yfirmenn hans munu leita að framherja í sumar Andoni Iraola valinn besti stjóri ensku úrvalsdeildarinnar Barðist við tárin eftir að hann var valinn bestur Luke Littler skaut á Liverpool „Það versta sem ég hef séð hjá þeim undir stjórn Klopp“ Kompany sektaður og dæmdur í tveggja leikja bann Félagið dæmt brotlegt og tvö stig tekin af næsta tímabili Hálfsjálfvirk rangstöðutækni á næsta tímabili Segir ekki satt að hann sé búinn að semja við Liverpool Tímabilið að ná hámarki en lykilmaður Man. City biður um hvíld Fyrrum leikmaður Liverpool var kókaínfíkill Sjá meira