Bætti eigið Íslandsmet í Danmörku

Snæfríður Sól Jórunnardóttir bætti eigið Íslandsmet í Danmörku í dag.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir bætti eigið Íslandsmet í Danmörku í dag. Ljósmynd/Simone Castrovillari

Snæfríður Sól Jórunnardóttir setti nýtt Íslandsmet í 200 metra skriðsundi á móti í Vejle í Danmörku í dag.

Snæfríður kom í mark á tímanum 2:00,50 og bætti eigið Íslandsmet um rúmlega sekúndu en gamla metið var 2:01,82.

Þá synti hún einnig undir B-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í  Tókýó sem fram fara í Japan næsta sumar sem og lágmarki fyrir EM í 50 metra laug, sem fram fer í maí í Búdapest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert