McLachlan og Jón Stefán taka við norðankonum

Þór/KA hefur ráðið nýja þjálfara.
Þór/KA hefur ráðið nýja þjálfara. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Perry McLachlan og Jón Stefán Jónsson eru teknir við kvennaliði Þórs/KA í knattspyrnu og skrifuðu báðir undir þriggja ára samninga við knattspyrnudeild félagsins.

Andri Hjörvar Albertsson var leystur frá störfum undir lok síðasta mánaðar og munu McLachlan í Jón Stefán nú stýra liðinu í sameiningu.

„Stjórn Þórs/KA væntir mikils af samstarfi við þessa reyndu þjálfara og bjóðum við þá velkomna til starfa hjá Þór/KA.

Markmið félagsins er sem fyrr að vera í fremstu röð liða á Íslandi og berjast um þá titla sem í boði eru – eins og verið hefur í meira en áratug,“ sagði meðal annars í tilkynningu á heimasíðu Þórs í dag.

Þór/KA hafnaði í 6. sæti úrvalsdeildar kvenna, Pepsi Max-deildinni, í sumar.

Perry McLachlan.
Perry McLachlan. Ljósmynd/Þór
Jón Stefán Jónsson.
Jón Stefán Jónsson. Ljósmynd/N4
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert