„Stórundarlegt“ að ekki hafi verið brugðist við Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. mars 2021 11:59 Karl Pétur Jónsson, bæjarfulltrúi Viðreisnar á Seltjarnarnesi. Vísir/vilhelm Bæjarfulltrúi minnihlutans í Seltjarnarnesbæ telur stórundarlegt að bæjaryfirvöld hafi ekki enn brugðist við athugasemdum slökkviliðs vegna brunavarna á Eiðistorgi. Ólýðandi sé að eignir bæjarins séu að valda skemmdum á eignum bæjarbúa. Bærinn segir brunamál á Eiðistorgi í vinnslu.
Greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að brotalamir væru á brunavörnum á Eiðistorgi sem meðal annars mætti rekja til þaks, sem er í eigu bæjarins. Bærinn hefði ekkert aðhafst þrátt fyrir athugasemdir slökkviliðs. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa leitaði eftir því í dag. Einar Már Steingrímsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að eldvarnarhurðir á Eiðistorgi séu í pöntun og reyklosunarbúnaður í skoðun. Verið sé að leita útfærslu og tilboða. Hluti þaksins hafi verið lagfærður fyrir fimm árum. Þá sé öll brunahönnun á Eiðistorgi í ferli. Ekki sé hægt að neita því að brunamál á Eiðistorgi hafi verið mjög lengi í vinnslu hjá bænum. „Ólíðandi“ að eignir bæjarins skemmi eignir bæjarbúa Karl Pétur Jónsson er bæjarfulltrúi Viðreisnar á Seltjarnarnesi. Hann hafði ekki heyrt af málinu fyrr en í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og segir það ekki hafa komið inn á vettvang bæjarstjórnar. „Það er náttúrulega algjörlega ólíðandi að eignir bæjarins séu að valda skemmdum á eignum bæjarbúa, fyrir utan það að bærinn hefur lögbundna skyldu til að bregðast við athugasemdum slökkviliðsins og það er stórundarlegt að það hafi ekki verið gert á einu og hálfu ári,“ segir Karl Pétur. Telurðu tilefni til að bregðast tafarlaust við þessu? „Það er náttúrulega bara skylda þess sem fer með framkvæmdavaldið í bænum að bregðast við þessu og það er bæjarstjórinn og hennar undirmenn sem eru sviðsstjórar á viðeigandi sviðum. Ég veit það er flókið og gæti verið kostnaðarsamt en skylda bæjarins er að bregðast við,“ segir Karl Pétur.
Seltjarnarnes Skipulag Slökkvilið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira