Kansas City Chiefs sækir í sig veðrið

Íslandsvinurinn Patrick Mahomes er aðalmaðurinn í sóknarleik Kansas.
Íslandsvinurinn Patrick Mahomes er aðalmaðurinn í sóknarleik Kansas. AFP

Kansas City Chiefs, leikið hefur til úrslita síðustu tvö skipti, er að hressast eftir erfiða byrjun í NFL-deildinni í ameríska fótboltanum. 

Kansas vann góðan sigur á Dallas Cowboys í nótt 19:9. Eftir að hafa tapað fjórum af fyrstu sjö leikjunum hefur Kansas nú unnið fjóra leiki í röð. 

Arizona Cardinals er enn með besta árangurinn en liðið hefur unnið níu leiki og tapað tveimur. Arizona vann Seattle Seahawks 23:13 í gær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert