Tveir fluttir á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur

Áreksturinn átti sér stað um eitt leytið í dag.
Áreksturinn átti sér stað um eitt leytið í dag. mbl.is/Eggert

Þriggja bíla árekstur varð við gatnamót Sæbrautar og Dalbrautar í Reykjavík í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru tveir einstaklingar fluttir á slysadeild.

Áreksturinn varð um kl. 13 í dag og stóðu aðgerðir á vettvangi yfir í um hálftíma.

Ekki fengust frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert