Hlaut meðaleinkunn sem aldrei verður toppuð Árni Sæberg skrifar 26. maí 2023 18:55 Orri Þór tók við brautskráningarskírteini af skólameistara MK í dag. Menntaskólinn í Kópavogi Sögulegt met var slegið á útskriftarathöfn Menntaskólans í Kópavogi í dag þegar Orri Þór Eggertsson var útskrifaður með hreina tíu í meðaleinkunn. Ljóst er að met Orra Þórs mun standa um ókomna tíð.
Orri Þór var nemandi á raungreinabraut og á afreksíþróttasviði skólans, að því er segir í fréttatilkynningu frá MK um útskriftarathöfnina. Þar segir jafnframt að semidúx skólans, sá nemandi sem útskrifaðist með næsthæstu meðaleinkuninna, hafi útskifast með þriðju hæstu meðaleinkunn sögunnar, 9,87. Þá segir að Tera Rún Júlíúsdóttir nýsveinn í framreiðslu hafi verið hæst nemenda verknáms með einkunn 9,13. „Tera Rún sat 2. og 3. bekk samhliða á vorönn og er því árangur hennar sérklega eftirtektarverður.“ Við athöfnina flutti Guðríður Eldey Arnardóttir skólameistari ræðu þar sem hún fór yfir fimmtíu ára sögu skólans og vék jafnfram að auknum vinsældum skólans, sterku félagslífi og vönduðu námsframboði. Þá vék skólameistari að glæsilegum árangri nemenda í verknámi á erlendum vettvangi en þar hafa nemendur skólans verið að skara fram úr á heims vísu, að því er segir í tilkynningu. Loks fór Guðríður Eldey með ræðu Ingólfs A. Þorkelssonar, sem hann flutti fyrsta útskriftarárgangi skólans árið 1977 en færði orðalag örlítið til nútímans. Orð Ingólfs eiga jafnvel vel við í dag eins og þegar þau voru mælt fyrir 46 árum. Þar sagði Ingólfur: „Og mikil stórvirki hafa verið unnin á sviðum tækni og vísinda, ekki vantar það. En þrátt fyrir alla framvindu erum við fjær því en nokkru sinni að sjá öllum svöngum jarðarbörnum fyrir mat og sjálf vísindin hafa sýnt fram á það með óyggjandi rökum að heimurinn okkar, heimur tækni og vísinda er heimur á heljarþröm. Heimur sem fær ekki staðist nema mannkynið geri sér ljóst að gæði jarðarinnar eru ekki óþrotleg og að varnarbarátta framtíðarinnar verður að snúast um varðveislu lífvænlegs umhverfis og réttlæti, en ekki um taumlausan ágóða og aukinn hagvöxt einni þjóð til handa á meðan önnur líður skort. Baráttan fyrir betri heimi verður bæði löng og tvísýn. Í þeirri baráttu er þörf djarfra viðsýnna og drengilegra liðsmanna. Í þeirri baráttu er þörf fyrir ykkur. Hafi seta ykkar í Menntaskólanum í Kópavogi hjálpað til að gera ykkur hæf til þeirrar baráttu hefur ekki verið stritað til einskis.“
Skóla - og menntamál Kópavogur Tímamót Framhaldsskólar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Fleiri fréttir Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Sjá meira