Sannfærandi hjá meisturunum

Unnur Ómarsdóttir var markahæst.
Unnur Ómarsdóttir var markahæst. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Íslandsmeistarar KA/Þórs unnu öruggan 34:24-útisigur á Aftureldingu í Olísdeild kvenna í handbolta í dag. Staðan í hálfleik var 18:11.

Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 6:5 eftir ellefu mínútna leik. Þá skoraði KA/Þór fimm mörk í röð og var Afturelding ekki líkleg til að jafna eftir það.

Unnur Ómarsdóttir skoraði sjö mörk fyrir KA/Þór og þær Ásdís Guðmundsdóttir, Aldís Ásta Heimisdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir gerðu fjögur hver. Katrín Helga Davíðsdóttir, Sylvía Björt Blöndal og Lovísa Líf Helenudóttir gerðu fimm hver fyrir Aftureldingu.

KA/Þór er í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig en nýliðar Aftureldingar eru án stiga á botninum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert