Smit í Eyjafjarðarsveit tengist sundlaug

Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar.
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar. Ljósmynd/Eyjafjaðrarsveit

Átta tilfelli kórónuveirunnar hafa greinst í Eyjafjarðarsveit. Fjórtán eru í sóttkví í sveitarfélaginu. Talið er að smitin tengist sundlaug í sveitinni. 

Fram kemur í tilkynningu frá sveitarfélaginu að rakningarteymi almannavarna vinni nú að því að rekja út frá nýjustu smitum, en svo virðist sem hægt sé að rekja þau flest saman. 

Af rakningu að dæma virðast flest smitanna tengjast með beinum eða óbeinum hætti morgunsundi í fyrri hluta síðustu viku. „Er því gott fyrir fólk að hafa í huga að hringja strax í heilsugæsluna ef einkenni gera vart við sig, sérstaklega ef það tengist þeim hópi,“ segir í tilkynningunni. 

Sveitarstjóra er ekki kunnugt um nein tilfelli af Covid-19 hjá börnum, foreldrum eða kennurum í leik- og grunnskóla. Nokkur börn og foreldrar eru þó í sóttkví, annars vegar vegna foreldra sem eru í heimasóttkví og hins vegar vegna nálægðar við veikan einstakling.

„Mikil og tíð samskipti eru nú við aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi eystra sem aðstoðar við að meta stöðuna hverju sinni og að leggja mat á hvort tilefni sé til breyttra aðgerða í samfélaginu,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert