Sérfræðingar með sautján tillögur að úrbótum hjá Seðlabankanum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. janúar 2023 14:29 Patrick Honohan, fyrrverandi seðlabankastjóri Seðlabanka Írlands, Joanne Kellermann, sem var um skeið stjórnarmaður í hollenska seðlabankanum, og Pentti Hakkarainen sem var um um árabil varaseðlabankastjóri Finnlandsbanka og formaður stjórnar finnska fjármálaeftirlitsins Þrír erlendir sérfræðingar sem skipuðu úttektarnefnd að beiðni forsætisráðherra hafa skilað sautján tillögum að úrbótum hjá Seðlabanka Íslands er varða peningastefnu, fjármálastöðugleika, fjármálaeftirlit og stjórnarhætti. Nefndin telur ástæðu til að endurskoða umboð fjármálaeftirlitsnefndar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu sem fékk þrjá óháða sérfræðinga til að gera úttekt á því hvernig Seðlabankanum hefði tekist að uppfylla markmið um stöðugt verðlag, fjármálastöðugleika og framkvæmd fjármálaeftirlits. Á vef ráðuneytisins segir að í hnotskurn sé það niðurstaða úttektarnefndarinnar að sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins hafi verið hrundið í framkvæmd hratt og af skilvirkni. „Samruni stofnana sé þó langtímaverkefni. Seðlabankinn hafi brugðist við vaxandi verðbólgu með hætti sem er ekki síðri en viðbrögð seðlabanka í Evrópu og N-Ameríku. Þjóðhagsvarúðartækjum hafi verið beitt til þess að varðveita fjármálastöðugleika og eftirlit hafi verið framkvæmt eftir reyndum ferlum.“ Hins vegar bendi nefndin á að nýja nefndaskipan þurfi að meta í ljósi reynslunnar og ástæða sé til að endurskoða umboð fjármálaeftirlitsnefndar. „Þá er bent á að hin miðstýrða stjórnskipan bankans sem hafi orðið fyrir valinu hafi stuðlað að skilvirkri framkvæmd sameiningarinnar en álitamál sé hvernig hún reynist til lengdar.“ Í skýrslunni er að finna 17 tillögur nefndarinnar er varða peningastefnu, fjármálastöðugleika, fjármálaeftirlit og stjórnarhætti. Flestar tillagnanna eru til úrvinnslu fyrir Seðlabankann en nokkrar þeirra snúa að mögulegum lagabreytingum. Úttektarnefndin var skipuð í maí í fyrra á grundvelli 36. gr. laga um Seðlabanka Íslands. Auk fyrrnefndra verkefna var nefndinni ætlað að líta til annarra þátta í starfsemi bankans, svo sem skipulags, verkaskiptingar og valdsviðs. Í nefndina voru valin Patrick Honohan, Joanne Kellermann og Pentti Hakkarainen. Patrick Honohan er fyrrverandi seðlabankastjóri Seðlabanka Írlands, Joanne Kellermann var um skeið stjórnarmaður í hollenska seðlabankanum og Pentti Hakkarainen var um um árabil varaseðlabankastjóri Finnlandsbanka og formaður stjórnar finnska fjármálaeftirlitsins. Skýrsluna á ensku og íslenskan úrdrátt má sjá að neðan. Tengd skjöl Skýrslan_á_enskuPDF413KBSækja skjal Skýrsla_um_Seðlabanka_-_formáli_og_samantektPDF33KBSækja skjal
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Seðlabankinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Hundrað þúsund kall á haus Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira