Sökuð um brot á sóttkví eftir að hafa tekið lit í íslenskri sól Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 8. apríl 2021 12:31 Kristrún Úlfarsdóttir var sökuð um að hafa brotið sóttkví eftir sólarlandaferð en hún var útitekin eftir að hafa farið í heitan pott í góðu veðri. Aðsend/Getty „Þetta kom svo flatt upp á mig að ég náði bara ekki að svara fyrir mig, ég var hreinlega í sjokki. Konan hans stóð bara kinkandi kolli við hliðina á honum,“ segir Kristrún Úlfarsdóttir í færslu sem hún deildi í gær á Facebook síðunni Góða systir.
Kristrún var stödd í matvöruverslun í gærdag og segir hún farir sínar ekki sléttar þegar eldri maður sakaði hana harkalega um brot á sóttkví en þess má geta að Kristrún hefur ekkert farið erlendis í heimsfaraldrinum. Togaði í peysu hennar og gargaði „Ég er að labba um að versla, eiginlega bara í eigin heimi. Ég var búin að heyra einhver læti út undan mér en var ekkert að pæla í því fyrr en það var togað í peysuna mína. Þar er eldri maður á háa c-inu að garga á mig: Átt þú ekki að vera í sóttkví? Djöfulsins lið sem getur ekki verið bara kjurrt á íslandi þegar að heimurinn er í klessu, alltaf að fara til sólarlanda að sóla sig.“ Kristrún segir henni hafa verið mjög brugðið við þessa óvæntu og hörðu athugasemd mannsins og hafi því ekki náð strax að svara fyrir sig. „Ég var hreinlega í sjokki!“ Hún segist svo hafa útskýrt fyrir manninum að hún hafi ekkert farið erlendis og hafi einfaldlega tekið lit í íslenskri sól. Hún segir manninn ekki hafa sætt sig við svarið og haldið áfram. „Ertu með sönnun fyrir því?“ Enn í áfalli Í samtali við Vísi segist Kristrún vera með opin Snapchat reikning, krissa4, og hafi hún nýlega birt myndbrot af sér vera að sóla sig í pottinum. Hún hafi hugsað með sér hvort hún ætti að sýna manninum mynbrotið til sönnunar en hafi þó ekki látið verða af því. Kristrún segist enn vera í töluverðu sjokki eftir þessa ágengni og undrar sig á því hversu fólk er fljótt að ganga á annað fólk með ásakanir. „Ég hef einu sinni áður lent í svona dónaskap fyrir nokkrum árum síðan, þá var ég að versla inn fyrir afmæli dóttur minnar þegar kona kemur upp á mér og segir mér að þetta sé ástæðan fyrir því að ég væri svona feit og benti ofan í körfuna mína. „Er heimurinn bara að verða svona?“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Lífið Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Lífið „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Lífið Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Lífið Bieber-hjónin eiga von á barni Lífið Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Lífið Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus Lífið „Eins og verstu unglingar í sleepover“ Makamál Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Lífið Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Lífið Fleiri fréttir Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Svakalega erfitt en stórkostlegt Anníe Mist fór í keisaraskurð Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Sötrað á Kalda í tíu ár Grease-stjarnan Susan Buckner látin Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Hera komst ekki áfram „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Sjá meira