Umboðsmaður barna beinir því til HSS að gera úrbætur á sýnatöku barna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. janúar 2022 09:51 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Vísir/Egill Salvör Nordal, umboðsmaður barna, hefur sent forstjóra Heilbrigðisstofnun Suðurnesja erindi þar sem því er beint til stofnunarinnar að gera úrbætur á framkvæmd sýnatöku barna vegna Covid-19.
Í erindinu, sem er dagsett 11. janúar, segir að umboðsmanni hafi borist ábendingar um að umhverfi sýnatökunnar sé ekki barnvænt, auk þess sem þröngt sé um börnin og foreldra þeirra. Þá séu þeir sem taka sýni úr börnunum ekki menntaðir heilbrigðisstarfsmenn og þeir hafi ekki fengið þjálfun í að eiga í samskiptum við börn. „Afar mikilvægt er að börn upplifi sig örugg og að aðstæður fyrir sýnatöku barna séu eins barnvænar og kostur er. Börn eru þjóðfélagshópur sem á rétt á sérstakri vernd og umönnun og hafa verður í huga að sýnataka og óvissa um niðurstöðuna getur valdið börnum miklum kvíða,“ segir í erindinu. Umboðsmaður beinir því til stofnunarinnar að aðskilja þau svæði þar sem sýnatökur barna annars vegar og fullorðinna hins vegar fara fram og umhverfið gert hlýlegt og barnvænt. Þá sé æskilegt að þeir sem taka sýni úr börnum séu heilbrigðisstarfsmenn eða hafi hið minnsta fengið þjálfun til að gera þeim kleift að bregðast við kvíða og vanlíðan barnanna vegna sýnatökunnar. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, sem sér um sýnatökur við Suðurlandsbraut, hafði áður fengið áþekkt bréf frá umboðsmanni og hefur nú brugðist við ábendingum, meðal annars með því að veita börnum forgang og þjálfa starfsmenn í að taka sýni úr börnum. Hins vegar er enn tekið á móti börnum og fullorðnum á sama svæði.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Börn og uppeldi Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Réttindi barna Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira