Pau Gasol gengur í raðir Börsunga og stefnir á Ólympíuleikana í Tókýó Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. febrúar 2021 18:30 Gasol lék síðast með Milwaukee Bucks vorið 2019. Hann er nú kominn á heimaslóðir í Katalóníu. Quinn Harris/Getty Images Spænski körfuknattleiksmaðurinn Pau Gasol tilkynnti í dag að hann sé í þann mund að ganga í raðir Barcelona. Hinn fertugi Gasol gerði garðinn frægan með Los Angeles Lakers í NBA-deildinni fyrr á þessari öld.
Gasol lék með Börsungum frá árinu 1998 til ársins 2001. Þaðan lá leiðin til Bandaríkjanna þar sem hann lék með Memphis Grizzlies, Los Angeles Lakers, Chicago Bulls, San Antonio Spurs og Milwaukee Bucks á annars mögnuðum ferli. Muy feliz de volver a casa. Força Barça! pic.twitter.com/NtfG3UUssE— Pau Gasol (@paugasol) February 23, 2021 Þekktastur er hann fyrir mögnuð ár með Lakers þar sem hann og Kobe Bryant fóru fyrir liðinu sem varð meistari árin 2009 og 2010. Þess má til gamans geta að yngri bróðir hans, Marc Gasol, leikur með Lakers í dag. Alls lék Gasol eldri sex sinnum í Stjörnuleik NBA-deildarinnar. Var hann einnig valinn nýliði ársins að loknu sínu fyrsta tímabili í deildinni. Gasol hefur einnig verið einkar sigursæll með spænska landsliðinu. Tvívegis hefur liðið farið í úrslit Ólympíuleikanna en tapað og þá nældi liðið í brons árið 2016. Gasol varð heimsmeistari með Spánverjum 2006 ásamt því að hafa unnið EM í körfubolta árin 2009, 2011 og 2015. Hann hefur ekkert spilað síðan samningur hans við Bucks rann út vorið 2019. Gasol hefur verð að glíma við meiðsli undanfarið en er við það að komast í sitt gamla form. Hann mun vera í treyju númer 16 og gildir samningur hans við Barcelona út þetta tímabil. Þá heldur Gasol í vonina um að veraí leikmannahópi Spánar sem tekur þátt á Ólympíuleikunum í Tókýó næsta sumar. La bienvenida de @NikolaMirotic33 a @paugasol pic.twitter.com/O7oQWd5JOR— Barça Basket (@FCBbasket) February 23, 2021 Barcelona er í öðru sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 18 sigra og þrjú töp að loknum 21 leik. Íslensku landsliðsmennirnir Martin Hermannsson, Tryggvi Snær Hlinason og Haukur Helgi Pálsson leika allir með liðum í deildinni.
Körfubolti Spænski körfuboltinn Mest lesið Leik lokið: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Handbolti Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Enski boltinn Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Fótbolti Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Fótbolti Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Íslenski boltinn Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Körfubolti Skaut á Taylor Swift og sagði konum að halda sig í eldhúsinu Sport Fleiri fréttir Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Oddaleikur í opinni dagskrá: Grindvíkingar taka á móti Keflvíkingum Oddaleikur í opinni dagskrá: Allt undir á Hlíðarenda Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins Oddaleikur Vals og Njarðvíkur: Frákastakóngar liðanna skila mestu Oddaleikur Grindavíkur og Keflavíkur í kvöld: Basile og Kane á toppnum Svona verður oddaleikjaveislan á Stöð 2 Sport í kvöld „Þetta var rosalega heimsk villa hjá mér í endann“ Þruman jafnaði með góðum endaspretti og Boston einum sigri frá úrslitum Austursins „Auðvitað voru einhverjir villtir draumar um að fara í úrslitin“ „Við vorum ekki að fara að fá neitt gefins hérna“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit Keflavíkurkonur hafa aldrei tapað oddaleik á heimavelli Fyrsta skiptið í úrslitakeppninni eftir „Guð blessi Ísland“ „Ekki nógu illa gefinn til að átta mig ekki á því“ „Vonandi gerir hann aftur eitthvað svona heimskulegt“ Utan vallar: Mótlæti smakkast vel í Keflavík Murray með ótrúlega flautukörfu fyrir aftan miðju er Denver jafnaði ÍR-ingar stoppuðu stutt alveg eins og KR: Komnir upp í Subway Atlanta Hawks fá fyrsta valrétt í nýliðavalinu Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 85-82 | Ótrúlegur endir skilaði Val í úrslit Íslandsmótsins