Þrír Íslandsvinir mæta með liði Glasgow City á Hlíðarenda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2020 15:01 Mairead Fulton (númer 7) óskar hér Valskonum til hamingju með Íslandsmeistaratiilinn í fyrra ásamt þáverandi liðsfélögum hennar í Keflavík. Vísir/Daníel Þór
Valskonur geta tryggt sér sæti í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar á morgun þegar skosku meistararnir í Glasgow City koma í heimsókn á Hlíðarenda. Glasgow City varð skoskur meistari þrettánda árið í röð í fyrra og komst síðan alla leið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Það er því ljóst að um krefjandi verkefni er að ræða. Í liði Glasgow City eru þrjár knattspyrnukonur sem kannast vel við sig á Íslandi en það eru þær Zaneta Wyne, Lauren Wade og Mairead Fulton. Wade og Fulton spiluðu með íslenskum liðum sumarið 2019 en Wyne varð Íslandsmeistari með Þór/KA árið 2017. Wyne lék einnig með Þór/KA sumarið 2016 og með Víkingi Ólafsvík í næstefstu deild sumarið 2014. Lauren Wade spilaði með Þrótti í B-deildinni sumarið 2019 og mörk hennar tuttugu áttu mikinn þátt í því að Þróttarakonur unnu sér sæti í Pepsi Max deildinni. Mairead Fulton spilaði með Keflavík í Pepsi Max deildinni sumarið 2019 og var með 1 mark og 2 stoðsendingar í 16 deildarleikjum liðsins. Fulton hafði þá spilað með Keflavík í tvö tímabil en hún fór upp með liðinu sumarið 2018. Lauren Wade var í byrjunarliði Glasgow City í fyrstu umferð undankeppninnar en fór af velli á 71. mínútu fyrir einmitt Mairead Fulton. Leikurinn fór alla leið í vítakeppni þar sem Mairead Fulton skoraði úr sínu víti. Mairead Fulton kom líka inn á sem varamaður fyrir Lauren Wade í síðasta deildarleik og skoraði þá mikilvægt þriðja mark liðsins í 3-2 sigri á Hibernian. Hér fyrir neðan má sjá markið hennar um helgina. View this post on Instagram A post shared by Glasgow City FC (@glasgowcityfc) Valskomur slógu út finnsku meistarana í HJK Helsinki með 3-0 sigri á heimavelli en Glasgow City vann 6-5 sigur á írsku meisturunum í Peamount United í vítakeppni. Þegar Glasgow City fór alla leið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í fyrra þá sló liðið út rússneska liðið Chertanovo frá Moskvu út í 32 liða úrslitum og lið Bröndby frá Danmörku í 16 liða úrslitunum. Glasgow City tapaði síðan 9-1 á móti Wolfsburg í átta liða úrslitunum sem fóru fram á Spáni. Leikur Vals og Glasgow City verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á morgun og hefst útsendingin klukkan 13.45.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Í beinni: Man. City - Wolves | Meistararnir á miklu skriði Enski boltinn Fleiri fréttir „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Í beinni: Man. City - Wolves | Meistararnir á miklu skriði Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli FH-ingar kynna besta lið sögunnar Sjá meira