Spá að verðbólga hjaðni um tæp sjö prósent á næstu tveimur árum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 1. febrúar 2023 10:03 Þjóðhagsspá Íslandsbanka var birt í morgun. Vísir/Vilhelm Verðbólga mun hjaðna úr þeim tæpum 10 prósent sem hún nemur núna niður í 2,8 prósent árið 2025 gangi ný Þjóðhagsspá Íslandsbanka eftir. Þá spáir greiningardeild bankans að atvinnuleysi muni standa í stað á árinu.
Útlit er fyrir að hagvöxtur á síðasta árið hafi verið 7,0 prósent þar sem mikill kraftur var í eftirspurnarvexti og ferðaþjónustan náði vopnum sínum á ný. Þá hafa hagvaxtarhorfur í ár batnað frá síðustu spá og 3,4 prósenta hagvexti spáð á árinu. Fram kemur í Þjóðhagsspá Íslandsbanka að útlit sé fyrir samskonar hagvöxt á næsta ári þar sem hlutur einkaneyslu og fjárfestingar eykst á ný en dregur úr útflutningsvexti. Á síðasta ári spátímans, árið 2025, er spáð tæplega 3 prósenta hagvexti og ræður hægari útflutningsvöxtur mestu um hægari hagvöxt. Eins og áður segir spáir greiningardeildin því að verðbólgan hjaðni. Ársverðbólga jókst nú í janúar og mælist 9,9 prósent. Spáin hljóðar svo að verðbólgan verði að meðaltali 7,6 prósent á þessu ári. Á næsta ári verði hún að meðaltali 4,5 prósent og 2,8 prósent árið 2025. Þannig verði verðbólgan árið 2025 farin að nálgast 2,5 prósenta markmið Seðlabankans ef allt gengur eftir. Þá mun draga úr spennu á vinnumarkaði að mati greiningardeildar. Áfram verði þó talsverð þörf fyrir aðflutt vinnuafl, sérstaklega í greinum eins og byggingarstarfsemi. Samkvæmt nýlegri könnun Gallup meðal 400 stærstu fyrirtæki landsins telja 53 prósent þeirra skort vera á starfsfólki. Mestur skorturinn er í byggingargeiranum. Næst mestur mælist skortur á starfsfólki hjá fyrirtækjum í verslun og þar á eftir ferðaþjónustu. Útlit er því fyrir enn frekari fjölgun starfa á næstu misserum sem líklegt er talið að verði að stórum hluta mönnuð af erlendu starfsfólki. Erlent starfsfólk hérlendis telur um 45 þúsund, eða um 21 prósent allra á vinnumarkaði. Hlutfallið hefur aldrei verið hærra. Atvinnuleysi er þá talið munu standa í stað á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 3,3 prósent í desember og spáir bankinn því að það haldist svipað á árinu. Deildin spáir því þá að kaupmáttur launa aukist á nýjan leik strax á þessu ári vegna þeirra samninga sem hafa verið undirritaðir af 40 prósent vinnumarkaðar. Bankinn spáir 1 prósenta kaupmáttarvexti á árinu og tæplega 2 prósentum árin 2024 og 2025
Efnahagsmál Verðlag Íslenskir bankar Íslandsbanki Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Viðskipti innlent Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Viðskipti innlent Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Farsímatekjur undir væntingum Viðskipti innlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Viðskipti innlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Sjá meira