Innlent

66 greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa 12.899 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári.
Alls hafa 12.899 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

66 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 24 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 36 prósent. 42 voru utan sóttkvíar, eða 64 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.

653 eru nú í einangrun vegna Covid-19, en voru 615 í gær. 1.418 eru nú í sóttkví, en voru 1.282 í gær. 255 eru nú í skimunarsóttkví.

Sjö eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, en voru átta í gær. Enginn er á gjörgæslu vegna Covid-19 að því er segir á vef Landspítalans. Allir inniliggjandi eru fullorðnir og er meðalaldur þeirra 49 ár.

Sex smit kom upp á landamærunum í gær og var um sex virk smit í fyrri landamæraskimun að ræða.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 187,1, en var 183,3 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 18,5, en var 17,5 í gær.

Alls hafa 12.899 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 33 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Tekin voru 1.010 einkennasýni í gær, 817 sýni á landsmærum og þá greindust 388 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×