Íslensk erfðagreining gæti hlaupið undir bagga í lífsýnarannsóknum í sakamálum Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 6. desember 2022 23:38 Kári bendir á að á Íslandi er auðvelt að finna einstaklinga eingöngu á grundvelli erfðaefnis. Vísir/Vilhelm „Ef að það er þörf á okkar getu og kunnáttu og leitað eftir henni þá erum við hér til staðar og reiðubúin að skoða allt milli himins og jarðar,“ segir Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar en hann telur Íslenska erfðagreiningu fyllilega í stakk búna til að sinna lífsýnarannsóknum í sakamálum hér á landi.
Lífsýni í íslenskum sakamálum hafa hingað til verið send til rannsóknar í Svíþjóð á vottuðum rannsóknarstofum. Hrina alvarlega sakamála í Svíþjóð undanfarið hefur hins vegar valdið því að biðtími eftir sýnum hefur lengst og hefur það tafið rannsókn sakamála hérlendis. Sænska rannsóknarstofan annar einfaldlega ekki eftirspurn. Kári ræddi við Reykjavík síðdegis um málið og sagði það vera tiltölulega auðvelt fyrir Íslenska erfðagreiningu að sjá um þessar lífsýnarannsóknir. „Þetta er sú tegund af vinnu sem við erum að vinna öllum stundum, sem er að taka erfðaefni úr fólki og raðgreina það, aðgerðagreina og finna samsvörun á milli sýna. Þannig að þetta væri ekki flókið fyrir okkur.“ Kári bendir á að áður en slíkt gæti átt sér stað þyrfti að ganga frá formlegum atriðum. Til að mynda þyrfti Íslensk erfðagreining að fá viðurkenningu sem formleg rannsóknarstofa á þessu sviði. Það væri lítill vandi. „Það þarf fyrst og fremst vilja til að nýta þá aðstöðu sem hér er. Þegar Svíar vilja fara út í flóknar rannsóknir á erfðaefni þá leita þeir til okkar. Þannig að það hvergi í Norður Evrópu eru menn með sömu getu og við. Þannig að þetta ætti að vera tiltölulega auðvelt.“ Kári segir að um einföld vísindi sé að ræða. Hægt væri að skila niðurstöðum úr rannsóknum innan nokkurra daga. Hann segir það þó ekki vera markmið hjá Íslenskri erfðagreiningu að sinna rannsóknum af þessu tagi. „Það mætti líta á þetta að einhverju leyti sem þegnskyldu, ef menn lenda í vandræðum með þetta í Svíþjóð, en þá þarf að vera vilji fyrir hendi hjá lögreglunni til að nýta þá getu sem við höfum. Einhvern veginn hefur enginn séð ástæðu til að ganga frá málum þannig að það yrði þannig.“ Auðvelt að finna einstaklinga á grundvelli erfðaefnis Hann hefur þó ekki áhuga á að gera Íslenska erfðagreiningu að rannsóknarstofu í réttarlæknisfræði. „Við myndum alls ekki vilja gera það. En okkur þykir vænt um íslenskt samfélag og eins og kom í ljós í Covid þegar þörf er á okkar þjónustu, þegar það sem við getum og kunnum er ekki til staðar annars staðar, þá hlaupum við í skarðið. En það þýðir hins vegar alls ekki að okkur langi að verða einhvers konar sóttvarnarstofnun, og það þýðir heldur ekki að okkur langi til að verða einhvers konar réttarlæknisfræðileg rannsóknarstofa.ׅ“ Kári bendir jafnframt á að á Íslandi er auðvelt að finna einstaklinga eingöngu á grundvelli erfðaefnis. Hins vegar þurfi að vera vilji í samfélaginu til að notfæra sér slíkt. „En eins og stendur þá erum við hérna í Vatnsmýrinni að reyna að gera uppgvötanir og lögreglan er í stöðugum viðskiptum við stórkostlega rannsóknarstofu í Svíþjóð sem hreyfir sig tiltölulega hægt.“
Reykjavík síðdegis Íslensk erfðagreining Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Sjá meira