Ný framkvæmdastýra UN Women frá Jórdaníu Heimsljós 16. september 2021 13:04 Sima Sami Bahous framkvæmdastýra UN Women. Sameinuðu þjóðirnar Sima hefur áratuga langa reynslu af stjórnunarstörfum á alþjóðavettvangi. Sima Sami Bahous hefur verið skipuð ný framkvæmdastýra UN Women. Sima tekur við af Phumzile Mlambo-Ngcuka sem lét af störfum í ágúst. António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti skipunina í vikubyrjun. Sima, sem er jórdönsk, hefur áratuga langa reynslu af stjórnunarstörfum bæði innan grasrótarinnar og á alþjóðavettvangi. Hún var áður fastafulltrúi Jórdaníu hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og starfaði á svæðisskrifstofu Þróunaráætlunar SÞ í Arabaríkjunum á árunum 2012-2016. Samkvæmt frétt frá UN Women á Íslandi hefur Sima gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum innan jórdanska stjórnarráðsins og verið útnefnd sérlegur ráðgjafi Jórdaníukonungs. Hún er með doktorsgráðu í samskiptum og þróunarfræðum, MA próf í bókmenntum og BA gráðu í enskum bókmenntum. Sima tekur við stöðu framkvæmdastýru UN Women af Phumzile Mlambo-Ngcuka sem gegnt hafði stöðunni frá árinu 2013. Phumzile er kennari að mennt og með doktorsgráðu í kennslufræðum. Hún hefur lengi verið virk í kvenréttindabaráttunni, bæði í heimalandi sínu Suður Afríku og á alþjóðvettvangi. Phumzile gegndi embætti varaforseta Suður Afríku á árunum 2005 til 2008 og var virk í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnu suður afrískra stjórnvalda á sínum yngri árum. „Á sama tíma og UN Women á Íslandi býður Sima Bahous velkomna til starfa, kveðja samtökin Phumzile og þakka henni fyrir einstakt starf í þágu kvenna og stúlkna um allan heim,“ segir í fréttinni. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Sameinuðu þjóðirnar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent
Sima Sami Bahous hefur verið skipuð ný framkvæmdastýra UN Women. Sima tekur við af Phumzile Mlambo-Ngcuka sem lét af störfum í ágúst. António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti skipunina í vikubyrjun. Sima, sem er jórdönsk, hefur áratuga langa reynslu af stjórnunarstörfum bæði innan grasrótarinnar og á alþjóðavettvangi. Hún var áður fastafulltrúi Jórdaníu hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og starfaði á svæðisskrifstofu Þróunaráætlunar SÞ í Arabaríkjunum á árunum 2012-2016. Samkvæmt frétt frá UN Women á Íslandi hefur Sima gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum innan jórdanska stjórnarráðsins og verið útnefnd sérlegur ráðgjafi Jórdaníukonungs. Hún er með doktorsgráðu í samskiptum og þróunarfræðum, MA próf í bókmenntum og BA gráðu í enskum bókmenntum. Sima tekur við stöðu framkvæmdastýru UN Women af Phumzile Mlambo-Ngcuka sem gegnt hafði stöðunni frá árinu 2013. Phumzile er kennari að mennt og með doktorsgráðu í kennslufræðum. Hún hefur lengi verið virk í kvenréttindabaráttunni, bæði í heimalandi sínu Suður Afríku og á alþjóðvettvangi. Phumzile gegndi embætti varaforseta Suður Afríku á árunum 2005 til 2008 og var virk í baráttunni gegn aðskilnaðarstefnu suður afrískra stjórnvalda á sínum yngri árum. „Á sama tíma og UN Women á Íslandi býður Sima Bahous velkomna til starfa, kveðja samtökin Phumzile og þakka henni fyrir einstakt starf í þágu kvenna og stúlkna um allan heim,“ segir í fréttinni. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Sameinuðu þjóðirnar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent