Fótbolti

Stelpurnar okkar mæta Nýja-Sjá­landi í Tyrk­landi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Reikna má með að Sveindís Jane Jónsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir verði landsliðshópi Íslands sem fer til Tyrklands og Sviss.
Reikna má með að Sveindís Jane Jónsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir verði landsliðshópi Íslands sem fer til Tyrklands og Sviss. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun mæta Nýja-Sjálandi í vináttuleik þann 7. apríl. Leikið verður í Tyrklandi.

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, greindi frá þessu fyrr í dag. Mun leikurinn fara fram í Mardan Sports Complex í Antalya þann 7. apríl. Leikurinn hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma.

Ísland er í 16. sæti heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, á meðan Nýja-Sjáland er í 24. sæti listans.

Fjórum dögum eftir leikinn gegn Nýja-Sjálandi spilar íslenska liðið vináttuleik við Sviss í Zürich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×