Njarðvíkingurinn enn og aftur bestur

Elvar Már Friðriksson
Elvar Már Friðriksson Ljósmynd/LKL

Elvar Már Friðriksson og samherjar hans hjá Siauliai máttu þola 64:87-tap fyrir Pieno Zvaigzdes í efstu deild Litháens í körfubolta í dag.

Elvar, sem hefur verið besti leikmaður Siauliai á leiktíðinni, hélt uppteknum hætti og var stigahæstur í sínu liði með 15 stig. Þá gaf hann einnig tvær stoðsendingar og tók þrjú fráköst á rúmum 33 mínútum.

Þrátt fyrir flotta frammistöðu Elvars hefur lítið gengið hjá Siauliai á leiktíðinni og er liðið í neðsta sæti deildarinnar með tvo sigra og átta töp eftir tíu umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert