Varaforsetinn útdeildi seðlum í klefanum Sindri Sverrisson skrifar 23. september 2021 13:01 Súrínam er 600.000 manna þjóð sem hlaut sjálfstæði frá Hollandi árið 1975. Ronnie Brunswijk er varaforseti landsins en einnig fótboltamaður, og enn að spila þrátt fyrir að vera orðinn sextugur. Eftir leik útdeildi hann seðlum í búningsklefa mótherjanna. Knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku, Concacaf, hefur hafið rannsókn vegna myndbands sem sýnir hinn sextuga Ronnie Brunswijk útdeila seðlum eftir að hafa spilað leik í keppni á vegum sambandsins.
Eins og fram hefur komið á Vísi þá ákvað Brunswijk, sem er varaforseti Súrínam og eigandi Inter Moengotapoe, að tefla sjálfum sér fram í leik gegn Olimpia frá Hondúras á þriðjudaginn. Leikurinn var í næststerkustu alþjóðlegu keppni Concacaf, svipaðri Evrópudeildinni. Brunswijk þraukaði fram í seinni hálfleik, með fyrirliðabandið, áður en honum var skipt af velli á 54. mínútu. Þá var staðan orðin 4-0 fyrir Olimpia sem vann að lokum 6-0 sigur. Aganefnd Concacaf er nú með til skoðunar myndband sem birtist á samfélagsmiðlum eftir leikinn. Þar sést Brunswijk, sem á sínum tíma var dæmdur fyrir fíkniefnasmygl í Hollandi, útdeila seðlum í búningsklefa andstæðinganna, Olimpia, eftir leikinn. Myndbandið má sjá hér að neðan. Klippa: Varaforseti Súrínam í búningsklefa mótherjanna Concacaf lýsir yfir þungum áhyggjum af efni myndbandsins sem veki upp spurningar um heilindi þeirra sem á því sjást. „Málið er inni á borði aganefndar Concacaf sem mun hefja formlega rannsókn og greint verður frá niðurstöðum hennar þegar þær liggja fyrir,“ segir í yfirlýsingu sambandsins. Leikmenn og aðstoðarþjálfari Olimpia, sem CNN ræddi við, vildu ekki setja út á þátttöku hins sextuga Brunswijk í leiknum og sögðu andstæðingum sínum einfaldlega frjálst að tefla fram því liði sem þeir vildu. Enginn af fulltrúum Inter Moengotapoe hefur svarað fyrirspurnum miðilsins um málið.
Fótbolti Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Fleiri fréttir „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti