Felur þremur stjórnarþingmönnum að „sætta ólík sjónarmið“ um Rúv Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 20. febrúar 2021 09:53 Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Vísir/Vilhelm Lilja Alfreðdsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur falið þremur fulltrúum ríkisstjórnarflokkanna að gera tillögur að breytingum á lögum um Ríkisútvarpið í þeirri von að „sætta ólík sjónarmið um starfsemi og hlutverk Ríkisútvarpsins.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu en í hópnum sitja þingmennirnir Kolbeinn Óttarsson Proppé fyrir hönd VG, Silja Dögg Gunnarsdóttir fyrir hönd Framsóknarflokks og Páll Magnússon fyrir hönd Sjálfstæðisflokks. „Mál þessi hafa verið mikið til umfjöllunar í samfélaginu og á Alþingi, meðal annars í tengslum við frumvarp ráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla og þau sjónarmið að umsvif Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði valdi samkeppnisskekkju sem eigi sinn þátt í bágri rekstrarstöðu einkarekinna miðla hér á landi,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Lilja Alfreðsdóttir hefur um hríð reynt að ná í gegn frumvarpi um stuðning við einkarekna fjölmiðla og var frumvarpi þess efnis, í nýrri mynd, síðast dreift á Alþingi í lok nóvember. Hefur frumvarpið farið í gegnum eina umræðu í þinginu og situr nú hjá allsherjar- og menntamálanefnd þar sem Páll Magnússon fer með formennsku. Meðal þess sem fulltrúunum þremur verður falið er að rýna í núverandi skilgreiningu á hlutverki Rúv og meta hvort þörf sé á að endurskilgreina hlutverk stofnunarinnar. Þá verði lagt mat á það hvernig Rúv geti best sinnt öryggishlutverki sínu og rýnt í gildandi kröfur og reglur um dreifikerfi Ríkisútvarpsins svo fátt eitt sé nefnt. Þá verður fulltrúunum einnig falið að meta hvernig fjármögnun Rúv verði best komið, það er hvort núverandi fyrirkomulag skuli halda áfram eða hvort breytinga sé þörf. Ráðgert er að fulltrúarnir ljúki störfum eigi síðar en 31. mars næstkomandi.
Alþingi Fjölmiðlar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Ríkisútvarpið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi og Faxaflóa Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Sjá meira