Myndi íhuga að refsa Pútín sjálfum geri Rússar innrás Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. janúar 2022 20:26 Joe Biden er forseti Bandaríkjanna. AP Photo/Andrew Harnik Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir að hann myndi íhuga að beita Vladímir Pútín, forseta Rússlands, persónulegum refsiaðgerðum ráðist Rússar inn í Úkraínu.
Gríðarleg spenna er nú í Austur-Evrópu vegna þess að Rússar hafa komið fyrir miklum fjölda hermanna og hergagna við landamæri Úkraínu að undanförnu. Óttast er að Rússar ætli sér að gera innrás í Úkraínu. Biden svaraði spurningum fréttamanna um stöðu mála á landamærum Rússlands og Úkraínu. Sagði hann að það myndi hafa gríðarlegar afleiðingar fyrir Rússa myndu þeir ráðast inn í Úkraínu. lfumLeiðtogar ríkja á Vesturlöndum hafa rætt saman um hvernig hægt væri að refsa Rússum fyrir innrás verði hún að veruleika, auk þess sem að Bandaríkin leggja mikla áherslu á að orkuframboð Evrópu verði tryggt, fari allt á versta veg. Gríðarlegt magn af gasi er flutt inn til Evrópu frá Rússlandi. Aðspurður hvort að hann sæi fyrir sér að beita Pútín persónulega refsiaðgerðum ráðist Rússar inn í Úkraínu svaraði Biden því játandi. „Ég sæi það fyrir mér,“ sagði hann, án þess þó að fara nákvæmlega út í það í hverju það myndi felast. Bandaríkin hafa sent hergögn til Úkraínu að undanförnu auk þess sem að 8.500 hermenn hafa verið settir í viðbragðsstöðu, fyrst og fremst til þess að liðsinna Nató-ríkjum. Úkraína er ekki meðlimur í Nato.
Bandaríkin Rússland Úkraína Tengdar fréttir Saka Bandaríkin um að auka spennu í Austur-Evrópu Ráðamenn í Rússlandi segjast fylgjast náið með og hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna Úkraínu-krísunnar. Rússar segjast ekki ætla að gera innrás í Úkraínu en segjast geta framkvæmt ótilgreindar hernaðaraðgerðir verði ekki orðið við kröfum þeirra. 25. janúar 2022 15:15 Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. 21. janúar 2022 13:19 „Rússarnir eru að sameina NATO“ Erindrekar Bandaríkjanna og Evrópu funda nú í Berlín vegna mögulegrar innrásar Rússlands í Úkraínu. Útlit er þó fyrir að spennan í Austur-Evrópu muni mögulega endurvekja Atlantshafsbandalagið. 20. janúar 2022 14:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Eiga von á öðru eldgosi Innlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Fleiri fréttir Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Sjá meira
Saka Bandaríkin um að auka spennu í Austur-Evrópu Ráðamenn í Rússlandi segjast fylgjast náið með og hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna Úkraínu-krísunnar. Rússar segjast ekki ætla að gera innrás í Úkraínu en segjast geta framkvæmt ótilgreindar hernaðaraðgerðir verði ekki orðið við kröfum þeirra. 25. janúar 2022 15:15
Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. 21. janúar 2022 13:19
„Rússarnir eru að sameina NATO“ Erindrekar Bandaríkjanna og Evrópu funda nú í Berlín vegna mögulegrar innrásar Rússlands í Úkraínu. Útlit er þó fyrir að spennan í Austur-Evrópu muni mögulega endurvekja Atlantshafsbandalagið. 20. janúar 2022 14:15