Fagnaðarlæti brutust út í Hörpu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 23. febrúar 2021 18:30 Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu. vísir/Egill Fimmtíu manns mega koma saman samkvæmt tilslökunum á samkomubanni sem taka gildi á morgun. Allt að tvö hundruð mega sækja menningar- og íþróttaviðburði þar sem eins metra regla verður í gildi.
Nýjar reglur gilda í þrjár vikur og samkvæmt þeim mega nú almennt fimmtíu manns koma saman í stað tuttugu. „Við erum áfram með tveggja metra regluna og grímur og þessi almennu varúðarsjónarmið,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, að lokum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þá mega 200 vera á söfnum og í verslunum í stað 150. Þar gildir þó enn tveggja metra reglan og því miðast hámarksfjöldi við stærð rýmisins, eða að hámarki fimm manns á hverja tíu fermetra. Stórar breytingar eru gerðar á reglum um ýmsa viðburði. Í leikhúsum, bíó, á athöfnum trúarfélaga og á tónleikum er nú heimilt að taka á móti tvö hundruð gestum í sæti í hverju rými eða hólfi. Þar tekur eins metra reglan við af tveggja metra reglunni. Þetta á einnig við um íþróttaviðburði þar sem áhorfendur verða nú leyfðir á ný. Halda þarf utan um sætaskipulagið. „Þannig að við vitum hver situr í hvaða sæti og að þeim upplýsingum sé haldið til haga. Það eru líka ákveðin skilmerki um að það snúi allir í sömu átt þannig það séu ekki allir í kös. Það sé svona ákveði kerfi á því hvernig fólk situr,“ sagði Svandís. Þetta á að hjálpa til við smitakningu ef svo ber undir. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.vísir/Vilhelm Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, segir þetta tímamót í menningarlífi landsins. „Það eiginlega bara brutust út fagnaðarlæti hér í morgun þegar ég sagði frá þessu og það hefur verið bros á hverju andliti í dag. Að taka tvo metrana niður í einn metra, það bara breytir öllu.“ Með hólfaskiptingu hefur að hámarki verið hægt að taka á móti þrjú hundruð og fimmtíu manns í Eldborg sem rúmar sextán hundruð manns. „Núna miðað við þetta, þegar það má vera metri á milli og það er auðvitað grímuskylda og við erum að nota fjögur sóttvarnarhólf hérna, að þá eru þetta 750 manns. Og í öðrum stærri sölum og í opnum rýmum að þá er þetta nánast tvöföldun,“ segir Svanhildur og bætir við að framboð á viðburðum muni eflaust aukast samhliða þessu. Frá og með morgundeginum mega tvö hundruð koma saman á menningarviðburðum. Gæta þarf að eins metra nándarmörkum.vísir/vilhelm Samkvæmt nýjum reglum mega einnig fleiri fara í sund, ræktina og á skíði þar sem fjöldamörk hækka úr 50 prósent af leyfilegum hámarksfjölda í 75 prósent. Þá mega fimmtíu vera inni á veitingastöðum og börum en þar virðist tveggja metra reglan enn í gildi. Heimilt verður að taka á móti fólki til klukkan tíu en gestir mega sitja áfram til ellefu. Í áskorun frá Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði var skorað á stjórnvöld að ganga lengra og víkka eins metra regluna út til veitingastaða. Heilbrigðisráðherra segir ágreining um reglurnar óumfýjanlegan. „Við erum náttúrlega með opnasta samfélag í Evrópu og sem betur fer erum við að stíga stór skref og erum að gera það núna strax en ekki í einhverri óskilgreindri framtíð. En það breytir því ekki að við þurfum að halda áfram að gæta okkar og þetta er dýrmætur árangur,“ segir Svandís Svavarsdóttir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Fleiri fréttir Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Sjá meira