Stefnir í miklar breytingar í miðbæ Kópavogs Samúel Karl Ólason skrifar 19. nóvember 2020 17:38 Hér má sjá hvernig miðbærinn mun líta út samvkæmt nýju aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi. PK arkitektar
Útlit er fyrir að miðbær Kópavogs muni taka stakkaskiptum á næstu árum. Samkvæmt breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulagi sem hafa verið samþykktar til kynningar verða 550 íbúðir á svæðinu. Svæðið í kringum Hamraborg verður skilgreint sem nýtt þróunarsvæði eða þéttingarsvæði og gert verður ráð fyrir verslun, þjónustu og íbúðum þar. Samkvæmt tilkynningu frá Kópavogsbæ verða gömlu bæjarskrifstofur Kópavogs að Fannaborg 2,4 og 6 rifnar og á það sama við um hús við Vallartröð og Neðstutröð. Þá er fyrirhugað að íbúðirnar nýju verði að fjölbreyttum stærðum og verða nýju húsin frá einni hæð til tólf. Skipulagssvæðið afmarkast af Vallartröð í austur, Digranesvegi í suður, Digranesvegi 1, Hálsatorgi og Hamraborg 8 í vestur og Hamraborg 10 til 38 í norður. Hér er svo mynd tekin frá sama sjónarhorni.Onno Í áðurnefndri tilkynningu segir að mannlífsás, gata fyrir gangandi og hjólandi, muni liggja frá menningarhúsum Kópavogs og alla leið að Kópavogsskóla. Milli þeirra fjölbýlishúsa sem standi við Hamraborg og nýju húsanna. Þar er gert ráð fyrir verslun og þjónustu á jarðhæð nýju húsanna og verður áhersla lögð á að skapa aðlaðanadi umhverfi og nýta kosti umhverfisins og staðsetningarinnar í miðbæ Kópavogs. Ein stærsta skiptistöð Strætó sé í næsta nágrenni og tvær leiðir Borgarlínu muni stoppa þar. „Hamraborgarsvæðið er afar vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu og mikil tækifæri til þéttingar og endurnýjunar á þessu svæði. Við munum leggja áherslu á gott umhverfi fyrir iðandi mannlíf og þjónustu, íbúðir verða af ýmsum stærðum og gerðum en munu meðal annars henta vel þeim sem kjósa bíllausan lífstíl og vilja hafa alla þjónustu í göngufjarlægð,“ er haft eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóri Kópavogs. Kynningarfundur um nýtt skipulag miðbæjar Kópavogs og fyrirhugaða uppbyggingu verður haldinn í desember. Fundinum verður streymt og verður hægt að leggja fyrir spurningar á meðan honum stendur. Að loknum fundi verður upptaka af honum gerð aðgengileg á vefsíðu Kópavogsbæjar. Dagsetning fundarins verður auglýst þegar hún liggur fyrir.
Kópavogur Borgarlína Skipulag Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Sjá meira