Fyrst verða greidd atkvæði um tillögu Pírata um nýjar alþingiskosningar Heimir Már Pétursson skrifar 25. nóvember 2021 12:01 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir starfandi forseti Alþingis gengur frá Dómkirkjunni ásamt fleirum til Alþingis við þingsetningu á þriðjudag. Vísir/Vilhelm Þingmenn munu fyrst greiða atkvæði um tillögu Pírata í kjörbréfamálinu um að ekkert þeirra kjörbréfa sem Landskjörstjórn gaf út að loknum kosningum verði staðfest. Þrjár tillögur verða lagðar fyrir þingfund í dag þar sem meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréfin verði staðfest.
Kjörbréfanefnd afgreiddi fjögur nefndarálit og þrjár tillögur til afgreiðslu Alþingis á kjörbréfamálinu á fundi þingsins sem hefst klukkan eitt í dag. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Flokks fólksins sem mynda meirihuta í nefndinni leggja til að öll kjörbréf verði samþykkt. Í minnihlutatillögu Svandísar Svavarsdóttur Vinstri grænum og Þórunnar Sveinbjarnardóttur Samfylkingu er lagt til að fjörtíu og sjö kjörbréf verði staðfest. Það er allra þingmanna annarra en kjördæmakjörinna þingmanna í Norðvesturkjördæmi og níu jöfnunarþingmanna. Ef sú tillaga yrði samþykkt yrði að boða til uppkosninga í Norðvesturkjördæmi. Þriðja tillagan kemur síðan frá Birni Leví Gunnarssyni fulltrúa Pírata um að ekkert kjörbréfanna verði staðfest. Ef sú tillaga yrði samþykkt yrði að boða til nýrra alþingiskosninga í öllum kjördæmum. Birgir Ármannsson segir tillögu Pírata ganga lengst og því sé það skoðun kjörbréfanefndar að fyrst eigi að greiða atkvæði um hana á þinginu í dag eða kvöld.Vísir/Vilhelm Birgir Ármannsson formaður nefndarinnar segir það í höndum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur starfandi forseta Alþingis í hvaða röð tillögurnar verða teknar til atkvæðagreiðslu. “Við í nefndinni höfum gert ráð fyrir að first verði greidd atkvæði um tillögu Pírata sem felur í sér að ekkert kjörbréf verði metið gilt,” segir Birgir. Þessi tillaga gangi lengst. Ef hún yrði samþykkt þyrfti að boða til nýrrra alþingiskosninga í öllum kjördæmum. Verði þessi tillaga felld segir Birgir að tillaga Svandísar og Þórunnar kæmi til atkvæðagreiðslu. „Um að fjörtíu og sjö kjörbréf verði samþykkt. En sleppt að samþiggja kjörbréf úr Norðvesturkjördæmi og kjörbréf jöfnunarmanna,“ segir Birgir. Fjögur nefndarálit og þrjár tillögur koma frá kjörbréfanefnd til atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag. Flestir reikna með að atkvæðagreiðslunni geti lokið í kvöld.Vísir/Vilhem Ef þessi tillaga næði fram að ganga þyrfti að fara fram uppkosning í Norðvesturkjördæmi. „Og ef hún nær ekki fram að ganga verði að lokum greidd atkvæði um kjörbréf allra sextíu og þriggja og kosningarnar þar með metnar gildar,“ segir formaður kjörbréfanefndar. Starfandi forseti Alþingis segist sömu skoðunar og nefndarfólk um röð tillagna í atkvæðagreiðslunni. Ómögulegt er að segja til um hve lengi umræðurnar standa enda engin tímamörk á þeim en almennt er búist við að hægt verði að lljúka þeim og greiða atkvæði um tillögurnar í kvöld. „Hins vegar er það auðvitað þannig að þetta er sérstakt mál og auðvitað stórt. Þannig að það eru auðvitað ýmsir þingmenn sem vilja taka til máls,“ segir Birgir Ármannsson.
Alþingiskosningar 2021 Alþingi Norðvesturkjördæmi Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir Þrjár tillögur lagðar fyrir Alþingi í dag Þrjár tillögur varðandi afgreiðslu kjörbréfa verða lagðar fyrir fund Alþingis sem hefst klukkan eitt í dag. Meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út verði samþykkt. 25. nóvember 2021 10:52 Grunar kosningasvik í Suðvesturkjördæmi Geir Guðmundsson, meðlimur í kjörstjórn Kópavogs, hefur kært framkvæmd Alþingiskosninga til lögreglunnar. Ástæða kærunnar er grunur um kosningasvik en umboðsmaður Sósíalistaflokksins, Baldvin Björgvinsson, telur sig hafa séð mismunandi stærðir af utankjörfundaratkvæðum í talningarbunkum. 24. nóvember 2021 23:38 Úrslit gætu legið fyrir í kjörbréfamálinu á Alþingi annað kvöld Engin tímamörk verða á umræðum þingmanna um afgreiðslu kjörbréfa á morgun en starfandi forseti Alþingis bindur þó vonir við að atkvæðagreiðslu ljúki annað kvöld. Fyrrverandi þingmaður Pírata hefur kært mögulegt kosningasvindl formanns yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi til lögreglu. 24. nóvember 2021 18:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Fleiri fréttir Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Sjá meira
Þrjár tillögur lagðar fyrir Alþingi í dag Þrjár tillögur varðandi afgreiðslu kjörbréfa verða lagðar fyrir fund Alþingis sem hefst klukkan eitt í dag. Meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út verði samþykkt. 25. nóvember 2021 10:52
Grunar kosningasvik í Suðvesturkjördæmi Geir Guðmundsson, meðlimur í kjörstjórn Kópavogs, hefur kært framkvæmd Alþingiskosninga til lögreglunnar. Ástæða kærunnar er grunur um kosningasvik en umboðsmaður Sósíalistaflokksins, Baldvin Björgvinsson, telur sig hafa séð mismunandi stærðir af utankjörfundaratkvæðum í talningarbunkum. 24. nóvember 2021 23:38
Úrslit gætu legið fyrir í kjörbréfamálinu á Alþingi annað kvöld Engin tímamörk verða á umræðum þingmanna um afgreiðslu kjörbréfa á morgun en starfandi forseti Alþingis bindur þó vonir við að atkvæðagreiðslu ljúki annað kvöld. Fyrrverandi þingmaður Pírata hefur kært mögulegt kosningasvindl formanns yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi til lögreglu. 24. nóvember 2021 18:31