Suður-Kóreumaðurinn snjalli, Heung-Min Son, réð úrslitum þegar Tottenham Hotspur vann 1:0-sigur gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Skoraði Son eina mark leiksins á 76. mínútu með skalla eftir hornspyrnu og skallasendingu frá Harry Kane.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.