Viðskipti innlent

Enn hækkar Seðla­bankinn stýri­vexti og nú um 1,25 prósentu­stig

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 7,5 prósentum í 8,75.

Greint er frá ákvörðuninni í yfirlýsingu frá peningastefnunefnd Seðlabankans sem birt var 8:30. Um er að ræða þrettándu stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð. Stýrivextir voru síðast svo háir síðan 3. febrúar 2010.

Í yfirlýsingunni segir að jafnframt hafi nefndin ákveðið að hækka fasta bindiskyldu innlánsstofnana úr 1 prósenti í 2 prósent.

„Efnahagsumsvif hafa verið kröftug það sem af er ári og samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er spáð 4,8% hagvexti á árinu í stað 2,6% í febrúar. Þar vega horfur á meiri vexti innlendrar eftirspurnar þungt en einnig er útlit fyrir kröftugri umsvif í ferðaþjónustu.

Verðbólga mældist 9,9% í apríl og jókst lítillega milli mánaða. Undirliggjandi verðbólga heldur áfram að aukast og miklar verðhækkanir mælast í sífellt stærri hluta neyslukörfunnar. Útlit er fyrir að verðbólguþrýstingur verði töluvert meiri í ár og á næsta ári en áður var gert ráð fyrir.

Verðbólguvæntingar til lengri tíma hafa jafnframt hækkað og eru vel yfir markmiði. Aukin hætta er því á að verðbólga reynist þrálát.

Í ljósi þess er nauðsynlegt að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar. Einkum er mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags, sérstaklega þegar litið er til mikillar spennu í þjóðarbúinu og hversu stutt er í næstu kjarasamningalotu. Horfur eru því á að hækka þurfi vexti enn meira til að tryggja betra jafnvægi í þjóðarbúskapnum og koma verðbólgu í markmið,“ segir í yfirlýsingunni.

Vextir verða því sem hér segir:

  1. Daglán 10,5%
  2. Lán gegn veði til 7 daga 9,5%
  3. Innlán bundin í 7 daga 8,75%
  4. Viðskiptareikningar 8,5%

Vefútsending með kynningu á yfirlýsingu nefndarinnar hefst klukkan 9:30 og verður hægt að fylgjast með útsendingunni hér á Vísi. Á kynningunni gera Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.

Hagfræðideild Landsbankans spáði því í síðustu viku að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands myndi hækka stýrivexti um eitt prósentustig.

Gert er ráð fyrir að næsta ákvörðun peningastefnunefndar verði þann 23. ágúst, eða að fjórtán vikum liðnum.


Tengdar fréttir

Seðla­bankinn nauð­beygður til að hækka vexti um hundrað punkta

Yfirgnæfandi meirihluti markaðsaðila býst við því að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 100 punkta á vaxtaákvörðunarfundi bankans á morgun. Meginstefið í svörum þeirra sem tóku þátt í könnun Innherja er að Seðlabankinn sé nauðbeygður enda er langt í næstu vaxtaákvörðun, raunvextir enn neikvæðir og bankanum hefur ekki tekist að ná stjórn á verðbólguvæntingum.

Spá því að vextir hækki um heila prósentu

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um eitt prósentustig í næstu viku. Ef spá Landsbankans gengur eftir verða stýrivextir hærri en þeir hafa verið í rúm þrettán ár.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×