Sá sem fluttur var á slysadeild eftir líkamsárás í Árbænum í dag er karlmaður á fertugsaldri.
Áverkar hans eru ekki lífshættulegir, að sögn Stellu Mjallar Aðalsteinsdóttur lögreglufulltrúa, en grunur er um hnífstungu.
Tveir karlmenn og ein kona voru handtekin í tengslum við málið og gista þau fangageymslur lögreglunnar. Ekki er búið að yfirheyra þau.