Gísli Marteinn Baldursson var gestur Eddu Falak og Fjólu Sigurðardóttur í hlaðvarpsþættinum Eigin Konur. Þar ræddu þau margt og mikið, til að mynda mataræði, samgöngur, stjórnmál og fjölmiðla. Þau komu inn á tjáningarfrelsi fjölmiðlamanna sem leiddi umræðuna út í cancel culture, sem er einnig þekkt sem slaufunarmenning. En það er umræða sem hefur verið mikið á milli tannana á fólki síðustu misseri.
Edda Falak spurði hann hvað honum þætti um fyrirbærið cancel culture og því svaraði Gísli með því að benda á að honum þætti þetta orð mögulega vera gildishlaðið. Svo spurði hann hvort einhverjum hefði í raun verið „cancelað“ á Íslandi.
„Mjög margir upplifa það líklega þannig að bæði Auði og Ingó hafi verið „cancelled“, en ef við tökum þeirra mál aðeins út fyrir sviga þar sem þeirra mál eru í gangi akkúrat núna. Hefur einhverjum verið cancelerað á Íslandi? Hefur einhverri bók eða manneskju verið rækilega cancelerað á samfélagsmiðlum?“ spurði Gísli.
„Ég hef alveg séð tilvik þar sem fólk er gagnrýnt fyrir eitthvað. Það er alveg stíf umræða um eitthvað fólk og gagnrýni og svona. Fólk segir alveg hluti eins og: „Ég ætla ekki að mæta á þetta,“ eða „ég ætla ekki að kaupa þessa bók,“ eða eitthvað svoleiðis. Þetta gerist bæði með Íslendinga og útlendinga.“
Gísli segir að sú menning sem hann lýsi hér að ofan sé ekkert ný. Fólk hafi lengi sniðgengið hvert annað. „Núna segir fólk: „Þú ert cancelled fyrir mér,“ og segir það í hálfkæringi, en meinar það stundum líka.“
Þá segist Gísli ekki skilja hvers vegna fólki finnist slaufunarmenningin vera svona mikið vandamál.
„Í alvöru talað þá sé ég ekki að þetta sé svona svakalegt vandamál að fólk með síma segi bara sína skoðun, það segir bara: „ Ég ætla ekki að mæta á tónleika því þessi er að spila, eða þessa útihátíð,“ Ég sé þetta ekki sem eitthvað svakalegt vandamál, eða að það sé verið að taka fólk af lífi,“ segir Gísli og spyr: „Hver hefur verið tekinn af lífi og ekki átt afturkvæmt?“
Þá sagði Gísli að hann viti um marga menn sem gjarnan sé minnst á í sambandi við kynferðisofbeldi en lifi þrátt fyrir það góðu lífi.
„Ég veit um fullt af stákum sem enn þá eru í umræðunni út af kynferðisofbeldi en lifa flottu lífi.“
Edda og Fjóla tóku undir þetta og tóku fram að þær hefðu í raun ekki séð neinum vera útskúfað úr samfélaginu líkt og oft sé talað um. Þá tók Gísli fram að oft hafi valdalítið fólk verið „cancelað“ af þeim valdamiklu. Að mati Gísla er breytingin sé sú að valdaminna fólk er að fá rödd í gegnum samfélagsmiðla.
Hægt er að hlusta á hlaðvarpsþáttinn í heild sinni hér að neðan: