Fleiri geta fengið uppsagnarstyrki Sunna Sæmundsdóttir skrifar 21. október 2020 17:19 Alþingi samþykkti í dag frumvarp er rýmkar skilyrði til greiðslna á uppsagnarfresti.
Alþingi samþykkti í dag frumvarp meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar sem kveður á um að fyrirtæki sem skiluðu ekki umsóknum um uppsagnarstyrki á réttum tíma geti samt sem áður fengið styrkinn. Lög um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslna á uppsagnarfesti voru samþykkt í vor en þau voru hluti af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins. Stuðningurinn nemur að hámarki 85 prósentum af launum starfsmanns á uppsagnarfesti og nær til þeirra sem sagt var upp störfum frá 1. maí til 1. október 2020. Fyrirtæki hafa þurft að skila umsókn um greiðsluna mánaðarlega til Skattsins og eigi síðar en 20. hvers mánaðar. Í frumvarpinu sem samþykkt var í dag segir að komið hafi í ljós að tímafresturinn hafi reynst óþarflega knappur og að ábendingar hafi komið fram um að atvinnurekendur hafi ekki náð að skila inn umsóknum í tæka tíð. „Með hliðsjón af markmiði laganna um að tryggja atvinnurekendum sem horfa fram á umfangsmikið tekjutap stuðning vegna faraldurs kórónuveiru og aðgerða sem honum tengjast er lagt til að atvinnurekendum verði veitt ríkara svigrúm við skil á umsóknum,“ segir í frumvarpinu. Lögin hafa afturvirkt gildi og gefst þeim sem uppfylla skilyrði greiðslunnar en náðu af einhverjum sökum ekki að skila inn umsókn innan tímarammans því kostur á að fá afgreiðslu á sinni umsókn. Stór hluti af uppsagnargreiðslum hefur farið til Icelandair.Vísir/Vilhelm Samkvæmt lista Skattsins hafa 312 fyrirtæki fengið greiðslur á uppsagnarfresti og nema þær alls um 9,4 milljörðum króna. Tæpur þriðjungur þess hefur farið til Icelandair, eða tæpir þrír milljarðar króna. Eigi ekki að auðvelda uppsagnir Þingmenn Samfylkingar sátu hjá við atkvæðagreiðslu. Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingar, sagði í umræðu um frumvarpið í dag að flokkurinn hefði greitt atkvæði gegn málinu á sínum tíma og talið að leggja ætti áherslu á að hjálpa fyrirtækjum að viðhalda ráðningarsambandi fremur en að segja fólki upp. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, tók í sama streng og sagði flokkinn hvorki styðja þetta frumvarp né það sem samþykkt var í vor. „Við lítum ekki svo á að það eigi að auðvelda fyrirtækum að segja upp fólki. Sama hvaða stærðar þau eru og sama í hvaða formi það er. Þannig við segjum nei.“
Alþingi Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Fleiri fréttir Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Komi ekki á óvart skapi ríkið aftur skaðabótaskyldu gagnvart Hvali hf. Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Sjá meira