West Ham skoraði fjögur

West Ham er komið áfram í 8-liða úrslitin.
West Ham er komið áfram í 8-liða úrslitin. AFP/Ben Stansall

West Ham er komið áfram í 8-liða úrslit Sambandsdeildar karla í knattspyrnu eftir öruggan sigur gegn AEK Larnaca á Englandi í kvöld.

Leiknum lauk með 4:0-sigri West Ham en Jarrod Bowen skoraði tvívegis fyrir West Ham í kvöld og þá skoraði Divin Mubarna eitt mark.

West Ham vann einvígið samanlagt 6:0 en fyrri leik liðanna á Grikklandi lauk með 2:0-sigri West Ham.

Þá skoraði Islam Slimani sigurmark Anderlecht þegar liðið vann óvæntan 1:0-sigur gegn Villarreal á Spáni en Anderlecht vann einvígið samanlagt 2:1.

Jesper Karlsson og Vangelis Pavlidis skoruðu mörk AZ Alkmaar þegar liðið vann 2:1-sigur gegn Lazio í Hollandi en Alkmaar vann einvígið 4:2 og er komið áfram í keppninni.

Nice vann svo 3:1-sigur gegn Sheriff í Frakklandi þar sem þeir Gaëtan Laborde, Terem Moffi og Billal Brahimi skoruðu mörk Nice sem vann einvígið sannfærandi, 4:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert