Gleymdur og grafinn Chilwell: Ekki spilað síðan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. september 2021 23:01 Ben Chilwell fagnar sigri í Meistaradeild Evrópu. Chris Lee/Getty Images Eftir að hafa verið aðeins einn þriggja útispilara sem fór með enska landsliðinu á EM án þess að spila mínútu hefur Ben Chilwell verið í sama hlutverki hjá Chelsea það sem af er tímabili. Chelsea keypti vinstri bakvörðinn Ben Chilwell frá Leicester City á 50 milljónir punda sumarið 2019. Hann varð strax lykilmaður í liði Frank Lampard en staðan breyttist aðeins eftir að Thomas Tuchel tók við af Lampard. Tuchel gaf Chilwell reglulega hvíld í ensku úrvalsdeildinni en notaði krafta hans óspart í Meistaradeild Evrópu. Spilaði hann alla leiki liðsins frá 8-liða úrslitum og allt þangað til bikarinn fór á loft í kjölfar 1-0 sigurs á Manchester City. Eftir sigur í Meistaradeildinni fór hinn 24 ára gamli Chilwell á EM með enska landsliðinu. Þar spilaði hann ekki eina mínútu og virðist sem þau vonbrigði hafi elt hann inn í núverandi tímabil. Svo segir þjálfari hans allavega. „Eftir vonbrigðin á EM náði hann lítið sem ekkert að slaka á í fríinu sínu. Hann hefur verið að velta sér upp úr þessu og pirra sig á því sem gerðist. Því var hann frekar andlega þreyttur þegar hann kom til baka.“ "It was a tough Euros for him personally. He felt he did everything to push the team but you never really feel part of the team if you never wear the shirt or sweat it out on the pitch."Thomas Tuchel sympathises for Ben Chilwell not being involved at the Euros for England pic.twitter.com/raG2Rn1ok1— Football Daily (@footballdaily) September 13, 2021 Chilwell var - og er eflaust - enn súr með það hvernig EM þróaðist hjá honum. Í fyrsta leik Englands ákvað Gareth Southgate, þjálfari liðsins, að stilla hægri bakverðinum Kieran Trippier upp í vinstri bakverði. Í öðrum leiknum sat Chilwell á bekknum frá upphafi til enda. Eftir leik spjallaði hann við Billy Gilmour, miðjumann Skotlands og liðsfélaga sinn hjá Chelsea. Í ljós kom skömmu síðar að Gilmour væri með Covid-19 og því þurfti Chilwell að fara í sóttkví. Missti hann því af lokaleik riðlakeppninnar, leik sem hann hefði mögulega fengið tækifærið í. Mount sneri aftur í sigrinum á Þýskalandi í 16-liða úrslitum en Chilwell var utan hóps. Hann var á bekknum gegn Úkraínu í 8-liða úrslitum og í stöðuni 4-0 hefði verið kjörið að leyfa Chilwell að fá nokkrar mínútur. Þess í stað kom Trippier inn fyrir Luke Shaw sem hóf leik í vinstri bakverðinum. Chilwell var svo hvorki í leikmannahóp Englands í undanúrslitum né úrslitaleiknum sjálfum Eftir að hafa horft á EM í sófanum heima hjá sér mætti Marcos Alonso ferskur til æfinga hjá Chelsea á meðan Chilwell var í raun nýfarinn í frí. Þegar sá enski mætti loks til æfinga hafði Alonso verið búinn að æfa í fimm vikur. Það var því eðlilegt að hann hafi byrjað sem vinstri vængbakvörður Chelsea-liðsins. Hann skoraði svo í fyrsta leik tímabilsins og hefur spilað allar þær mínútur sem í boði eru síðan. Þá bar hann fyrirliðabandið gegn Aston Villa þegar Cesar Azpilicueta og Jorginho byrjuðu á bekknum. Southgate sagðist ekki geta valið Chilwell í landsliðsverkefni Englands nú í september þar sem leikmaðurinn hefði ekki spilað síðan í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor. Að því sögðu var Jesse Lingard valinn en hann hafði aðeins spilað fjórar mínútur fyrir Manchester United í fyrstu þremur leikjum tímabilsins. Eftir að hafa náð hápunkti ferilsins þegar hann lyfti Meistaradeildarbikarnum virðist Chilwell mögulega hafa náð sínum lægsta punkti. Tuchel virðist þó hafa fulla trú á að hann jafni sig fyrr en síðar og gæti vel verið að 50 milljón punda bakvörðurinn fái loks að sýna hvað hann getur er Chelsea hefur titilvörn sína í Evrópu annað kvöld gegn Zenit St. Pétursborg. Chilwell blómstraði í þessari sömu keppni á síðustu leiktíð og hver veit nema það gerist aftur. Chelsea tekur á móti Zenit St. Pétursborg í Meistaradeild Evrópu klukkan 19.00 annað kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport 2. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Meistaradeild Evrópu Enski boltinn EM 2020 í fótbolta Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Körfubolti Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ Fótbolti Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Fótbolti Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Fótbolti Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Körfubolti Leverkusen neitar að tapa Fótbolti Fleiri fréttir Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Skulda Ronaldo meira en milljarð og hafa kannski ekki efni á Alberti „Er eiginlega ennþá í sjokki“ Romário tekur fram skóna til að spila með syninum „Þetta er töfrum líkast“ „Ég get ekki fundið réttu orðin“ Real sló meistarana úr leik eftir vítakeppni Kimmich tryggði Bayern sæti í undanúrslitum Öruggt hjá Chelsea sem jafnaði City á toppnum Þrenna frá Maríu þegar Fortuna flaug í bikarúrslit Þróttarar kjósa um nýtt merki Forseti Frakklands setur pressu á Real Madrid Arteta segir að sigur á Bayern myndi breyta Arsenal Sjá meira
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Enski boltinn EM 2020 í fótbolta Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Körfubolti Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ Fótbolti Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Fótbolti Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Fótbolti Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Körfubolti Leverkusen neitar að tapa Fótbolti Fleiri fréttir Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Klopp ætlar rifja upp frægu Barcelona ræðu sína í kvöld Skulda Ronaldo meira en milljarð og hafa kannski ekki efni á Alberti „Er eiginlega ennþá í sjokki“ Romário tekur fram skóna til að spila með syninum „Þetta er töfrum líkast“ „Ég get ekki fundið réttu orðin“ Real sló meistarana úr leik eftir vítakeppni Kimmich tryggði Bayern sæti í undanúrslitum Öruggt hjá Chelsea sem jafnaði City á toppnum Þrenna frá Maríu þegar Fortuna flaug í bikarúrslit Þróttarar kjósa um nýtt merki Forseti Frakklands setur pressu á Real Madrid Arteta segir að sigur á Bayern myndi breyta Arsenal Sjá meira