Kosningabragur á bólusetningum í Reykjavík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. desember 2020 17:05 Dagur B. Eggertsson segir að staðir verði opnaðir um alla höfuðborg um helgar þar sem fólk geti skellt sér í bólusetningu. Vísir/Vilhelm Borgarstjóri segir að skipulag bólusetningar í höfuðborginni verði með svipuðu fyrirkomulagi og í kosningum. Markmiðið sé að gera bólusetninguna auðsótta og aðgengilega svo opnaðir verða bólusetningastaðir í anda kjörstaða víða um borgina. „
Markmiðið er að gott útfært skipulag liggi fyrir áður en jól ganga í garð og þá verði hægt að hafa hraðar hendur þegar tímasetningar, magn og gerð bóluefnis liggur fyrir,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík í föstudagspistli sínum. Hann fagnar því að allir tólf sem greindust smitaðir í gær hafi verið í sóttkví. Það gefi til kynna að full tök hafi náðst á þessum litlu sýkingum sem hafa komið upp undanfarið. „Fyrstu fundir dagsins voru ekki síður ánægjulegir en neyðarstjórn borgarinnar hefur skipað teymi til að vinna að skipulagi fjölda-bólusetningar í borginni með heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu sem mun hafa forystu um framkvæmdina,“ segir Dagur. Ýmislegt óvíst enn Fulltrúar heilsugæslunnar hafi komið á fund almannavarnarráðs höfuðborgarsvæðisins þar sem ákveðið var að hafa samræmda framkvæmd bólusetninga á höfuðborgarsvæðinu. Skipulagið þurfi að taka mið af því að ekki liggi ennþá fyrir hvenær eða hversu mikið magn af bóluefni berst til landsins eða af hvaða tegund það verði. „Þetta getur verið allt frá því að vera bara nægilega margir skammtar fyrir forgangshópa. Þá ríður á að vera tilbúin með skipulag og lista yfir þá. Vonir standa þó til að nægilega mikið magn berist til að hægt verði að bjóða almenningi bólusetningu á stórum skala.“ Hugmyndin sé að fylgja sama skipulagi og í kosningum þar sem tugir kjörstaða séu opnir um helgar um allt höfuðborgarsvæðið. Sannfærður um árangur „Það er gert til að gera kosningar auðsóttar og aðgengilegar og nákvæmlega sömu sjónarmið eiga við um fjöldabólusetningar. Starfsfólk heilsugæslunnar mun hafa veg og vanda af sjálfri bólusetningunni en starfsfólk sveitarfélaga, hugsanlega með aðkomu björgunarsveita og annarra sem kallaðir verða til munu skipuleggja framkvæmdina að öðru leyti og tryggja að allt gangi vel fyrir sig, og samkvæmt sóttvarnarreglum, eins og þær verða á þeim tíma,“ segir Dagur. „Ég er sannfærður um að við getum staðið jafnvel að skpulagi og útfærslu bólusetninga og okkur hefur tekist varðandi útfærslu sóttvarna í faraldrinum undir forystu okkar ágæta þríeykis. Ísland er nú með lægsta nýgengi smita í allri Evrópu og ef við stöndum saman eigum við að geta náð nægilega góðri þátttöku og þar með hjarðónæmi gegn veirunni.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík Heilbrigðismál Bólusetningar Heilsugæsla Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Fleiri fréttir Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Sjá meira