Hraunhellinum lokað vegna fágætra jarðhitaútfellinga

Hraun­hell­ir fannst á dög­un­um í grennd við Jarðböðin í Mý­vatns­sveit …
Hraun­hell­ir fannst á dög­un­um í grennd við Jarðböðin í Mý­vatns­sveit þar sem unnið var að greftri grunn­ar fyr­ir ný­bygg­ing­ar. Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka nýfundnum helli við Jarðböðin í Mývatnssveit í ljósi fágætra og viðkvæmra jarðhitaútfellinga sem þar hafa fundist.

Í tilkynningu er vitnað til þess að hraunhellar og virkar útfellingar af völdum jarðhita njóti verndunar samkvæmt 61. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. 

Lokunin tekur gildi klukkan 12 í dag og gildir í tvær vikur. Stefnt er að því að endurskoða lokunina innan þess tíma. 

Hellirinn hefur að geyma sér­stak­ar og afar fá­gæt­ar jarðmynd­an­ir.
Hellirinn hefur að geyma sér­stak­ar og afar fá­gæt­ar jarðmynd­an­ir.

Á meðan lokunin er í gildi getur Umhverfisstofnun, í samráði við rekstraraðila Jarðbaðanna, veitt leyfi fyrir ferðum í hellinn sem tengjast frekari könnun hans og öðrum rannsóknum á honum, en öll önnur umferð verður óheimil,“ segir í tilkynningunni.

Frá því að hellirinn fannst hefur umferð um hann verið verulega takmörkuð með það að markmiði að valda sem minnstu raski á þeim jarðminjum sem þar er að finna.

Dreifing útfellinganna um hellinn er slík að erfitt er að ferðast um hann án þess að valda óafturkræfu raski á útfellingunum,“ segir í tilkynningunni og að starfsmenn Eflu hafi unnið að kortlagningu og skönnun hellisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert