Bíó og sjónvarp

Strax uppselt á Blondie og Debbie Harrie því færð í Háskólabíó

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Uppselt á tveimur dögum, en miðasala hófst á þriðjudag.
Uppselt á tveimur dögum, en miðasala hófst á þriðjudag. riff

Miðar seldust upp á Evrópufrumsýningu Blondie: Að lifa í Havana og viðburðinn Samtal við Debbie Harry á vegum RIFF 2021 í Bíó Paradís og hefur viðburður rokkdrottningarinnar verið færður í hátiðarsalinn í Háskólabíó.

Það er ljóst að Íslendingar eru áhugasamir um Debbie Harry því það seldist upp á viðburðinn hennar Samtal með Debbie Harry á tveimur dögum. Aðstandendur RIFF hafa því brugðist skjótt við og hefur viðburðinn verið færður yfir í Hátíðarsal Háskólabíós svo hægt verði að koma fleirum fyrir.

Debbie verður viðstödd Evrópu frumsýningu á nýrri stutttónleikamynd Blondie: Að lifa í Havana sem fjallar um langþráða tónleikaferð hljómsveitarinnar til Kúbu. 

Í kjölfarið mun Debbie eiga samtal um líf sitt og starf við Andreu Jónsdóttur útvarpskonu og Berg Ebba leikara. Mun hún ásamt leikstjóra myndarinnar, Rob Roth svara spurningum úr sal að lokum. Rob Roth er mikils metinn listamaður sem er ekkert heilagt þegar kemur að listrænni tjáningu en hann ægir saman fjölbreyttum listformum í verkum sínum. Debbie hefur löngum verið þekkt sem poppækon, tískuækon og talskona fyrir réttindum kvenna.

Áhorfendum mun gefast kostur á að taka þátt í umræðunum og því er von á einstökum viðburði sem lengi mun í minnum lifa. Takmarkaður fjöldi miða fáanlegur hér.


Tengdar fréttir

BDSM, kristni og heimsmet í tölvuleikjum

Heimildamyndaflokkur RIFF í ár er mjög fjölbreyttur en þær 11 myndir sem sýndar eru voru flestar frumsýndar á stærstu heimildarhátíðum veraldar eins og Sundance, Tribeca, CPH:DOX og Alþjóðlegu heimildarmyndahátíðinni í Amsterdam.

Aldrei fleiri íslenskar myndir á dagskrá RIFF

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, hefst með krafti í næstu viku, fimmtudaginn 30. september. Miðasalan opnaði formlega í dag á vef hátíðarinnar, www.riff.is en þar er hægt að kaupa hátíðarpassa og staka miða. 

Myndirnar sem keppa um Gullna lundann á RIFF í ár

„Átta splunkunýjar myndir keppa um Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF í ár. Myndirnar koma frá átta löndum, og er umfjöllunarefni þeirra og efnistök einstaklega spennandi í ár,“ segir í tilkynningu frá RIFF






Fleiri fréttir

Sjá meira


×