Lygilegur sigur Frakka hélt þeim á lífi Valur Páll Eiríksson skrifar 25. júlí 2021 11:00 Gignac bar Frakka á herðum sér í dag. Zhizhao Wu/Getty Images Frakkar hafa verið allt annað en sannfærandi í fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum það sem af er. Eftir 4-1 tap fyrir Mexíkó í fyrsta leik var útlit fyrir að liðið félli úr keppni í morgun en hádramatísk endurkoma hélt þeim á lífi.
Fjórum leikjum er lokið í karlaboltanum í Japan í morgun, einn í hverjum riðlanna fjögurra. Frakkar eru í A-riðli og mættu þar liði Suður-Afríku í mikilvægum leik. Bæði lið höfðu tapað fyrsta leik sínum; Frakkar 4-1 fyrir Mexíkó og Suður-Afríka 1-0 fyrir heimamönnum í Japan. Markalaust var í hálfleik en Luther Singh hafði klúðrað vítaspyrnu fyrir þá suður-afrísku skömmu fyrir hléið. Aðeins átta mínútu voru liðnar af síðari hálfleiknum þegar Kobamelo Kodisang kom Suður-Afríku hins vegar yfir. Hinn 35 ára gamli André-Pierre Gignac, sem leikið hefur með Tigres í Mexíkó undanfarin sex ár, jafnaði þó fyrir Frakka fjórum mínútum síðar. Andre-Pierre Gignac is now the top men's scorer at the Olympics Mexico South Africa pic.twitter.com/mCqRKxD8QJ— Goal (@goal) July 25, 2021 Evidence Makgopa kom Suður-Afríku í forystu á nú á 72. mínútu en aftur var það Gignac sem jafnaði, nú sex mínútum eftir mark Makgopa. Aðeins þremur mínútum eftir það skoraði Teboho Mokoena er hann kom Suður-Afríku í forystu í þriðja sinn, staðan 3-2. Gignac var hins vegar ekki hættur þar sem hann innsiglaði þrennu sína í leiknum af vítapunktinum á 86. mínútu leiksins er hann jafnaði í þriðja sinn. Þá lagði hann upp mark fyrir Teji Savernier, leikmann Montpellier, í uppbótartíma sem tryggði Frökkum ótrúlegan 4-3 sigur. Frakkar eru þá með þrjú stig í riðlinum, líkt og Japan og Mexíkó sem eigast við klukkan 11:00. Svipað hjá Hondúras Hondúras var í sömu stöðu og franska liðið eftir tap í sínum fyrsta leik en Nýja-Sjáland var andstæðingur þeirra í dag. 1-1 stóð í hléi áður en Chris Wood, samherji Jóhanns Berg Guðmundssonar hjá Burnley, kom þeim nýsjálensku yfir snemma í síðari hálfleik. 2-1 stóð fram á 78. mínútu þegar Juan Obregon jafnaði fyrir Hondúras og þá skoraði Rigobert Rivas sigur mark þeirra á 87. mínútu. Hondúras vann leikinn 3-2 og er með þrjú stig í riðlinum líkt og Nýja-Sjáland og Rúmenía. Þeir rúmensku mæta Suður-Kóreu klukkan 11:00 en þeir síðarnefndu eru án stiga eftir fyrstu umferðina. Argentína komið á blað en Fílabeinsstrendingar héldu tíu Brössum í skefjum Medina var hetja Argentínumanna.Masashi Hara/Getty Images Argentína tapaði óvænt 2-0 fyrir Ástralíu í fyrsta leik í C-riðli keppninnar en mark Facundo Medina á 52. mínútu tryggði þeim 1-0 sigur á Egyptum í dag. Argentína er með þrjú stig líkt og Ástralía í riðlinum en Egyptar og Spánverjar eru með eitt stig hvort. Þeir spænsku mæta Áströlum í leik sem hófst 10:30. Þá varð markalaust jafntefli á milli toppliðanna í D-riðli; Brasilíu og Fílabeinsstrandarinnar. Brasilía hafði unnið 4-2 sigur á Þýskalandi í fyrsta leik en Fílabeinsströndin 2-1 sigur á Sádum. Douglas Luiz, leikmaður Aston Villa á Englandi, fékk rautt spjald í liði Brassa eftir aðeins 13 mínútna leik. Fílabeinsströndin, sem skartar meðal annars Frank Kessié úr AC Milan og Eric Bailly úr Manchester United, tókst ekki að setja mark gegn tíu Brössum en þeir luku einnig leik með tíu menn eftir ða Eboue Kouassi fékk að líta sitt annað gula spjald tíu mínútum fyrir leikslok. Ekkert var skorað í leiknum og eru bæði lið með fjögur stig eftir tvo leiki. Þjóðverjar og Sádar eigast við klukkan 11:30.
Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Enginn Viktor Gísli en Þorsteinn Leó í hópnum Sport Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Íslenski boltinn Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Handbolti „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Körfubolti Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Íslenski boltinn Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Enski boltinn Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Körfubolti Fleiri fréttir Í beinni: Genoa - Lazio | Heldur Albert uppteknum hætti? Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Xabi Alonso tók metið af Conte Sería A örugg með fimm Meistaradeildarsæti Besta-spáin 2024: Brakar í heila prófessorsins Nagelsmann framlengir samning sinn við þýska landsliðið Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Besta-spáin 2024: Svífa áfram á bleika skýinu Segir að Haaland hafi beðið um skiptingu Læknar sögðu Arnór heppinn að ekki skyldi hafa farið verr Besta-spáin 2024: Ekkert Murr Murr Sjá meira