Alfreð æfir með Lyngby: Gæti spilað síðar í vikunni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. júlí 2022 09:00 Danmörk gæti verið næsti áfangastaður Alfreðs Finnbogasonar. Mario Hommes/Getty Images Alfreð Finnbogason æfir með lærisveinum Freys Alexanderssonar hjá danska úrvalsdeildarfélaginu Lyngby. Gæti Alfreð spilað æfingaleik með liðinu á föstudaginn kemur.
Hinn 33 ára gamli Alfreð lék með Augsburg í Þýskalandi á síðustu leiktíð en samningur hans rann út í sumar og er framherjanum því frjálst að semja við hvaða lið sem er. Hann var í viðræðum við Hammarby í Svíþjóð nýverið en er nú mættur til æfinga í Danmörku. Danski vefurinn Bold greindi frá að Alfreð væri nú að æfa með nýliðum Lyngby en liðið flaug upp í dönsku úrvalsdeildina á fyrsta tímabili Freys. Þekkjast þeir ágætlega frá því að Freyr var aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins en Alfreð hefur spilað 61 A-landsleik fyrir Íslands hönd. Lyngby mætir Bröndby í dag, þriðjudag, en Alfreð er ekki meðal leikmanna liðsins í þeim leik. Í frétt Bold kemur hins vegar fram að hann gæti spilað með Lyngby er liðið mætir HB Köge á föstudag. "Vi vil teste nogle taktiske elementer af" Vi tester formen af mod Brøndby IF ved frokosttid i dag - se truppen og hør fra Freyr Alexandersson herunder #SammenforLyngbyhttps://t.co/LmhrVqFovA— Lyngby Boldklub (@LyngbyBoldklub) July 5, 2022 Lærisveinar Freys eru í óðaönn að undirbúa sig fyrir komandi tímabil en liðið mætir Silkeborg í fyrstu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar þann 17. júlí næstkomandi. Alls var Alfreð í sex ár hjá Augsburg en hann hefur komið víða við á atvinnumannaferli sínum. Alfreð hefur spilað á Spáni með Real Sociedad, í Grikklandi með Olympiacos, með Heerenveen í Hollandi, Helsingborg í Svíþjóð og Lokeren í Belgíu. Hver veit nema Lyngby í Danmörku sé næst á dagskrá.
Fótbolti Danski boltinn Tengdar fréttir Segir Alfreð staddan í Svíþjóð á leið í viðræður Sænski miðillinn Sport Expressen greinir frá því að Alfreð Finnbogaon sé staddur í Svíþjóð þar sem hann sé á leið í viðræður við Hammarby. 21. júní 2022 19:59 „Er heill núna en út af nokkrum ástæðum gaf ég ekki kost á mér“ Sóknarmaðurinn Alfreð Finnbogason segist alls ekki hættur með íslenska landsliðinu. Hann segir að aðstæður undanfarin tvö ár ekki hafa boðið upp á að taka þátt í verkefnum íslenska landsliðsins. 16. júní 2022 14:30 Meiddist illa á hné skömmu fyrir HM og hefði í raun ekki átt að spila á mótinu Alfreð Finnbogason meiddist illa á hné skömmu fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem fram fór í Rússlandi sumarið 2018. Hann spilaði í gegnum sársaukann en segir meiðslin hafa haft áhrif á feril sinn í töluvert langan tíma eftir að móti lauk. 16. júní 2022 07:00 Alfreð farinn frá Augsburg Framherjinn Alfreð Finnbogason verður ekki áfram í herbúðum Augsburg í Þýskalandi. Frá þessu greindi úrvalsdeildarfélagið í dag. 15. júní 2022 13:33 Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Enski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Fleiri fréttir Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli Sjá meira
Segir Alfreð staddan í Svíþjóð á leið í viðræður Sænski miðillinn Sport Expressen greinir frá því að Alfreð Finnbogaon sé staddur í Svíþjóð þar sem hann sé á leið í viðræður við Hammarby. 21. júní 2022 19:59
„Er heill núna en út af nokkrum ástæðum gaf ég ekki kost á mér“ Sóknarmaðurinn Alfreð Finnbogason segist alls ekki hættur með íslenska landsliðinu. Hann segir að aðstæður undanfarin tvö ár ekki hafa boðið upp á að taka þátt í verkefnum íslenska landsliðsins. 16. júní 2022 14:30
Meiddist illa á hné skömmu fyrir HM og hefði í raun ekki átt að spila á mótinu Alfreð Finnbogason meiddist illa á hné skömmu fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem fram fór í Rússlandi sumarið 2018. Hann spilaði í gegnum sársaukann en segir meiðslin hafa haft áhrif á feril sinn í töluvert langan tíma eftir að móti lauk. 16. júní 2022 07:00
Alfreð farinn frá Augsburg Framherjinn Alfreð Finnbogason verður ekki áfram í herbúðum Augsburg í Þýskalandi. Frá þessu greindi úrvalsdeildarfélagið í dag. 15. júní 2022 13:33