„Er harðasti Valsarinn í heiminum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2022 11:31 Má ég heyra? vísir/bára Kristófer Acox varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn með Val í gær og í fjórða skiptið alls. Hann var að vonum í skýjunum þegar Ríkharð Óskar Guðnason ræddi við hann eftir sigurinn á Tindastóli, 73-60, í oddaleik í Origo-höllinni. „
Það er alltaf erfitt að gera upp á milli titla en ég set hann alveg efst með hinum. Þetta er ólýsanleg tilfinning, að fá að vera Íslandsmeistari fyrir framan þessa áhorfendur. Þetta er gjörsamlega geðveikt,“ sagði Kristófer. Tæplega fjögurra áratuga bið Vals eftir Íslandsmeistaratitli lauk loks í gær. Kristófer segir sérstakt að vera hluti af liðinu sem braut þennan þykka ís. „Þetta er algjör heiður. Við vorum vonsviknir að detta út í fyrra og ætluðum okkur titilinn. Við vissum að við ættum að rífa þetta félag upp á hæsta plan. Það var helvíti erfitt að labba út og sjá alltaf 1983 á veggnum,“ sagði Kristófer og vísaði til meistaraveggsins fræga á Hlíðarenda. „Þetta hefur verið markmiðið frá byrjun og það er geggjað að fá að upplifa þetta núna eftir alla þessa mánuði.“ Klippa: Viðtal við Kristófer Acox Kristófer segir að Valsmenn séu ekki saddir og ætli sér að byggja ofan á árangur tímabilsins. „Algjörlega. Maður vill alltaf verja titilinn og halda áfram. Allir sem upplifðu þetta núna vilja pottþétt upplifa þetta aftur. Við erum að reyna að búa til alvöru stemmningu. Horfum í kringum okkur. Þetta er komið til að vera,“ sagði Kristófer. En hversu mikill Valsari er Kristófer orðinn? „Ég er harðasti Valsarinn í heiminum,“ svaraði Kristófer sem skoraði þrettán stig og tók nítján fráköst í oddaleiknum í gær. Kristófer er uppalinn hjá KR en yfirgaf félagið 2020 vegna launadeilu sem fór fyrir dómstóla. KR var á endanum gert að greiða honum tæpar fjórar milljónir króna vegna vangoldinna launa. Í úrslitakeppninni var Kristófer með 11,6 stig og 10,1 fráköst að meðaltali í leik. Í deildarkeppninni var hann með 15,0 stig og 11,3 fráköst að meðaltali í leik.
Subway-deild karla Valur Körfuboltakvöld Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Fleiri fréttir Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Sjá meira