Japanskur auðjöfur í skemmtiferð til geimstöðvarinnar Samúel Karl Ólason skrifar 6. desember 2021 09:25 Soyuz-eldflaugin reist í Baikonur. AP/Pavel Kassin Japanski auðjöfurinn Yusaku Meazawa leggur af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar (ISS) í vikunni. Honum verður skotið út í geim á Soyuz-eldflaug frá Baikonur í Kasakstan og verður hann um borð í geimstöðinni í tólf daga.
Með Meazawa verður Yozo Hirano, kvikmyndagerðarmaður sem á að festa geimferð auðjöfursins sem er talinn þrítugasti ríkasti maður Japans á filmu. Geimfarinn Alexander Misurkin fer sömuleiðis með þeim en hann er yfirmaður ferðarinnar. Til stendur að skjóta þremenningunum á loft á miðvikudaginn. Meazawa bókaði ferðina hjá bandaríska fyrirtækinu Space Adventures en það hefur sent sjö ferðamenn til ISS. Síðast fór Guy Laliberté þangað árið 2009, samkvæmt frétt Space.com. Ekki hefur verið gefinn upp hvað geimferð mannanna tveggja kostar en samkvæmt frétt AFP fréttaveitunnar hafa sambærilegar ferðir kostað milljónir Bandaríkjadala. Space.com segir aðra viðskiptavini Space Adventures hafa greitt frá tuttugu til fjörutíu milljónir dala. Mawzawa er metinn á um 1,9 milljarð dala, sem samsvarar tæpum 250 milljörðum króna. 2 # pic.twitter.com/KSEvbyOgrF— 12/8 (@yousuck2020) December 5, 2021 Meazawa ætlar þó ekki eingöngu til ISS en hann hefur einnig bókað geimferð í kringum tunglið hjá SpaceX. Sú ferð verður í fyrsta lagi farin árið 2023. Í þá ferð ætlaði hann upprunalega að taka með sér listamenn og nýja kærustu og hóf hinn 46 ára gamli auðjöfur nokkurs konar kærustukeppni á netinu. Hann hætti þó við og bað fólk um að senda umsóknir. Hann segist hafa fengið milljón umsóknir um átta sæti í geimfarinu. Síðustu almennu borgarar sem fóru til geimstöðvarinnar voru Klim Shipenko, leikstjóri, og Júlía Peresild, leikkona, en þangað fóru þau til að taka upp atriði fyrir kvikmynd. Þeim var einnig skotið út í geim með Souyz-eldflaug og voru einnig í tólf daga um borð í geimstöðinni.
Rússland Japan Geimurinn Alþjóðlega geimstöðin Tengdar fréttir Sex hundraðasti geimfarinn á leið til geimstöðvarinnar Fjórir geimfarar eru á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar eftir vel heppnað geimskot frá Flórída í nótt. Áætlað er að þau komi til geimstöðvarinnar seinna í dag en um borð í Crew Dragon geimfarinu er sex hundraðasti geimfari jarðarinnar. 11. nóvember 2021 10:54 Luku 198 daga geimferð í nótt Fjórir geimfarar féllu til jarðar í geimfari SpaceX í nótt og lentu undan ströndum Flórída. Þar með lauk 198 daga geimferð um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Þetta var þriðja mannaða geimferð SpaceX en sú fjórða hefst væntanlega á morgun. 9. nóvember 2021 09:48 Koma bleyjuklæddir heim vegna salernisbilunar Geimfarar sem nú dvelja um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni en hyggja á heimferð á morgun neyðast til að vera með bleyju á leiðinni heim, þar sem salernið um borð í SpaceX farinu sem mun flytja þá til jarðar er bilað. 6. nóvember 2021 19:07 Fyrstu kvikmyndatökunni úti í geim lokið Rússnesk leikkona og leikstjóri sneru aftur til jarðar í gær eftir að hafa varið tólf dögum í Alþjóðlegu geimstöðinni þar sem þau voru við tökur á nýrri kvikmynd. Við komuna til jarðar fóru þau strax í að taka upp nokkrar aukasenur þrátt fyrir tólf daga linnulausar tökur. 18. október 2021 13:21 William Shatner er elsti geimfari jarðarinnar Geimskot Blue Origin þar sem níræði leikarinn William Shatner varð elsti maður jarðarinnar til að fara út í geim, heppnaðist vel. Eftir að vera skotið á loft frá Texas lentu geimfararnir nýju heilu og höldnu annarsstaðar í ríkinu. 13. október 2021 15:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fara fram á farbann Innlent Skipið leggur úr höfn Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Fleiri fréttir Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Sjá meira
Sex hundraðasti geimfarinn á leið til geimstöðvarinnar Fjórir geimfarar eru á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar eftir vel heppnað geimskot frá Flórída í nótt. Áætlað er að þau komi til geimstöðvarinnar seinna í dag en um borð í Crew Dragon geimfarinu er sex hundraðasti geimfari jarðarinnar. 11. nóvember 2021 10:54
Luku 198 daga geimferð í nótt Fjórir geimfarar féllu til jarðar í geimfari SpaceX í nótt og lentu undan ströndum Flórída. Þar með lauk 198 daga geimferð um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Þetta var þriðja mannaða geimferð SpaceX en sú fjórða hefst væntanlega á morgun. 9. nóvember 2021 09:48
Koma bleyjuklæddir heim vegna salernisbilunar Geimfarar sem nú dvelja um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni en hyggja á heimferð á morgun neyðast til að vera með bleyju á leiðinni heim, þar sem salernið um borð í SpaceX farinu sem mun flytja þá til jarðar er bilað. 6. nóvember 2021 19:07
Fyrstu kvikmyndatökunni úti í geim lokið Rússnesk leikkona og leikstjóri sneru aftur til jarðar í gær eftir að hafa varið tólf dögum í Alþjóðlegu geimstöðinni þar sem þau voru við tökur á nýrri kvikmynd. Við komuna til jarðar fóru þau strax í að taka upp nokkrar aukasenur þrátt fyrir tólf daga linnulausar tökur. 18. október 2021 13:21
William Shatner er elsti geimfari jarðarinnar Geimskot Blue Origin þar sem níræði leikarinn William Shatner varð elsti maður jarðarinnar til að fara út í geim, heppnaðist vel. Eftir að vera skotið á loft frá Texas lentu geimfararnir nýju heilu og höldnu annarsstaðar í ríkinu. 13. október 2021 15:00